Sýnt frá réttarhöldunum í beinni í sjónvarpi og á YouTube Dómari í Bandaríkjunum hefur ákveðið að sýnt verður beint frá réttarhöldunum yfir Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, og þeim átján til viðbótar sem hafa verið ákærðir fyrir að reyna að hafa áhrif á niðurstöður forsetakosninganna í Georgíu árið 2020. 1.9.2023 06:58
„Förum af stað til veiða um leið og lygnir“ „Ég veit það ekki, það er spáð vitlausu veðri næstu daga, en við förum af stað til veiða um leið og lygnir,“ segir Kristján Loftsson, eigandi Hvals hf., um það hvenær hvalveiðar hefjast. 1.9.2023 06:26
Kvöldfundur vegna atvinnutilboðs Icelandair til átján flugmanna Play Átján flugmenn Play sem voru á biðlista eftir störfum hjá Icelandair fengu símtal í gær þar sem þeim var boðið að hefja störf hjá félaginu. Þeir sem hyggjast þiggja boðið verða að segja upp hjá Play í dag. 31.8.2023 08:35
Fleiri Hollywood-stjörnur hóta að sniðganga Ísland vegna veiðanna Enn fleiri nöfn er nú að finna á undirskriftalista sem safnað er á í Hollywood gegn hvalveiðum Íslendinga. Leikstjórarnir Jane Campion, James Cameron og Peter Jackson eru meðal þeirra sem hafa bæst í hóp mótmælenda. 31.8.2023 08:15
Fordæmir spillingu í tengslum við undanþágur frá herþjónustu Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti hefur fordæmt spillingu í tengslum við heilsufarslegar undanþágur frá herþjónustu en hann segir að á sumum svæðum hafi fjöldi þeirra tífaldast frá því í fyrra. 31.8.2023 06:56
Að minnsta kosti 64 látnir eftir eldsvoða í Jóhannesarborg Að minnsta kosti 64 eru látnir og 43 særðir eftir að eldur braust út í marghæða byggingu í Jóhannesarborg í Suður-Afríku í morgun. Yfirvöld segja líklegt að fleiri séu látnir. 31.8.2023 06:40
Sérsveitin kölluð til vegna manns með hníf í miðborginni Sérsveit ríkislögreglustjóra var kölluð til í miðborg Reykjavíkur í gær vegna manns sem var vopnaður hnífi. Var hann í annarlegu ástandi og var handtekinn og vistaður í fangageymslu. 31.8.2023 06:16
Ríflega 100 veiktust í fjórum matartengdum hópsýkingum árið 2022 Fjórar stórar matartengdar hópsýkingar voru tilkynntar til sóttvarnalæknis árið 2022. Tvær voru af völdum nóróveiru, ein af völdum E. coli (EPEC) en í einu tilvikinu er orsakavaldurinn enn óþekktur. 30.8.2023 12:48
Kanada gefur út viðvörun vegna ferða hinsegin fólks til Bandaríkjanna Stjórnvöld í Kanada hafa gefið út ferðaviðvörun til hinsegin fólks sem hyggst ferðast til Bandaríkjanna. Ástæðan eru ný lög og reglur í sumum ríkjum Bandaríkjanna, sem gætu mögulega haft áhrif á hinsegin ferðalanga. 30.8.2023 08:09
213 látnir af völdum Covid og metfjöldi greindur með lekanda Samtals létust 213 einstaklingar árið 2022 þar sem Covid-19 var undirliggjandi orsök. Mynstur inflúensu var óvenjulegt og óvenjumikið um grúppu A streptókokkasýkingar, bæði hálsbólgu og skarlatssótt, og innlagnir á sjúkrahús vegna ífarandi sýkinga. 30.8.2023 07:15