Segir sig og Netanyahu munu ákveða hvenær þeir hætta Donald Trump Bandaríkjaforseti segir stríðið við Íran aðeins munu enda með sameiginlegri ákvörðun hans og Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, um að láta af árásum á landið. 9.3.2026 06:42
Skurðlæknir í Lundúnum fjarlægði blöðruhálskirtil á Gíbraltar Bretinn Paul Buxton greindist nýlega með krabbamein í blöðruhálskirtli og gekkst undir skurðaðerð fyrr á árinu, þar sem blöðruhálskirtilinn var fjarlægður. 6.3.2026 08:53
Grænmetis„borgarar“ í lagi en ekki grænmetis„beikon“ Þing og ráðherraráð Evrópusambandsins hafa komist að samkomulagi um þau orð sem framleiðendur grænmetisrétta mega og mega ekki nota um vörur sínar. 6.3.2026 08:22
Bandaríkjamenn heimila Indverjum að kaupa olíu frá Rússlandi Stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa veitt Indlandi 30 daga undanþágu til að kaupa olíu frá Rússlandi, vegna átakanna sem nú standa yfir í Mið-Austurlöndum. 6.3.2026 06:57
Bandaríkin og Ísrael boða harðari árásir á næstu dögum Stjórnvöld í Bandaríkjunum og Ísrael hafa varað við því að árásir á Íran muni aukast enn á næstu dögum. Ísraelsher sagðist í nótt hafa gert árásir á innviði klerkastjórnarinnar í Tehran og innviði Hezbollah í Beirút. 6.3.2026 06:46
Kýldi í rúðu leigubifreiðar og kastaði í hana flösku Leigubílstjóri óskaði eftir aðstoð lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi eða nótt, eftir að maður kýldi í rúðu bifreiðarinnar og kastaði flösku í hana. Árásarmaðurinn lét sig hverfa áður en lögregla mætti á vettvang. 6.3.2026 06:22
Ráðast á bandarískt olíuflutningaskip en sverja af sér árás á Tyrkland Hernaðaryfirvöld í Íran skutu eldflaug á bandarískt olíuflutningaskip á Persaflóa, ef marka má írönsku fréttastofuna Tasnim. Fréttastofan segir eld loga í skipinu. 5.3.2026 08:46
Bondi neydd til að svara spurningum um Epstein-málið Eftirlitsnefnd fulltrúadeildar Bandaríkjaþings samþykkti í gær, með 24 atkvæðum gegn 19, að stefna dómsmálaráðherranum Pam Bondi fyrir nefndina til að svara fyrir rannsókn ráðuneytisins á Jeffrey Epstein og meðhöndlun og birtingu Epstein-skjalanna. 5.3.2026 07:49
Meiriháttar líkamsárás og sérstakt innbrotaeftirlit Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um meiriháttar líkamsárás í gærkvöldi eða nótt. Greint er frá þessu í yfirliti lögreglu yfir verkefni vaktarinnar en engar frekar upplýsingar gefnar um málið, sem er sagt í rannsókn. 5.3.2026 06:30
Gæti Ísland dregist inn í átökin?: Eldflaug frá Íran skotin niður í lofthelgi Tyrklands Tyrkneska varnarmálaráðuneytið greindi frá því fyrr í dag að varnarkerfi Atlantshafsbandalagsins hefðu skotið niður eldflaug sem skotið var frá Íran og var á leið inn í lofthelgi Tyrklands. Sérfræðingur í varnarmálum segir líklega meira þurfa til að 5. grein Atlantshafssáttmálans verði virkjuð og að Ísland dragist inn í þau átök sem nú standa yfir. 4.3.2026 14:50