Fjölmiðlar svekktir yfir því að fá ekki að fara inn í Grindavík Miðstöð fyrir erlenda fjölmiðla vegna náttúruhamfaranna í Grindavík var opnuð í dag. Þýskur fréttamaður á heimleið segist svekktur yfir að hafa ekki fengið að fara inn í Grindavík. 19.11.2023 21:42
„Það þarf að finna lausn á lánamálum Grindvíkinga“ Þingmenn af Suðurnesjum segja nauðsynlegt að finna lausn á lánamálum Grindvíkinga svo íbúar þurfi ekki að hafa fjárhagsáhyggjur. Bankarnir hafi svigrúm til þess að leggja sitt af mörkum. Ef þeir taki ekki af skarið sjálfir þurfi stjórnvöld að grípa til aðgerða. 19.11.2023 12:18
Flugu til Tenerife til að giftast daginn fyrir rýmingu: „Maður er í afneitun“ Fjögurra manna fjölskylda frá Grindavík sem flaug til Tenerife daginn áður en bærinn var rýmdur segir blendnar tilfinningar fylgja því að hafa ekki verið heima á föstudaginn. Fjölskyldan sé í hálfgerðri afneitun og þau viti ekki hvað bíði þeirra við heimkomu í næstu viku 14.11.2023 19:39
Afþakkaði verðlaun til að forðast vesen Ekkert verður af útnefningu bæjarlistamanns Ísafjarðarbæjar árið 2023 þar sem listamaðurinn sem hlaut titilinn í ár hefur afþakkað hann. Áætlaðir fjármunir vegna verðlaunafjár bæjarlistarmannsins sem eru tvö hundruð þúsund krónur verða nýttir til frekari jólaskreytinga í sveitarfélaginu þess í stað. 14.11.2023 15:08
„Það verður erfiðara og erfiðara að fara um svæðið“ Land heldur áfram að síga í Grindavík og nýjar sprungur myndast í sífellu að sögn sviðsstjóra Almannavarna. Breytingarnar séu sýnilegar á milli daga og því þurfi að gera auknar öryggiskröfur í dag til þeirra sem fái að sækja nauðsynjar og verðmæta í bæinn í dag. 14.11.2023 12:11
Seldi húsið í Grindavík á föstudag en rændur í Reykjavík Marcel Marik lenti í þeirri hörmulegu lífsreynslu að vegabréfi hans og verðmætum var stolið úr bíl hans. En nokkrum klukkustundum fyrr seldi hann húsið sitt í Grindavík. Hann vonast til að geta búið áfram í Grindavík. 13.11.2023 17:08
Tengdasonur ársins kemur til bjargar Íbúar Grindavíkur voru í óða önn nú síðdegis við að forða sínu helsta á þeim skamma tíma sem gafst til að huga að verðmætum og persónulegum eignum. Fréttamaður Vísis greip Ásmund Guðnason glóðvolgan þar sem hann var að hlaða bíl sinn. 13.11.2023 16:05
Segja eign sína nú verðlausa með öllu Ómar Alaham og Amanda Jo Wood búa við stærstu sprungur sem myndast hafa í Grindavík. Fréttastofa rakst á þau þar sem þau voru að huga að aðstæðum en yfirvöld gáfu íbúum færi á því í dag. Íbúar hafa til klukkan 16:00 til að fara að sækja það allra nauðsynlegasta. Þá verður lokað aftur. 13.11.2023 15:24
Sig og sprungur við íþróttahúsið: „Þetta er það versta sem við höfum séð í dag“ Miklar skemmdir hafa orðið við íþróttahúsið í Grindavík. Þar hafa stórar sprungur opnast og jörð sigið töluvert. Björgunarsveitarfólk kannaði aðstæður á svæðinu í dag. 13.11.2023 14:46
Vonar að ekki þurfi að dreifa grindvískum börnum milli skóla Skólastjóri grunnskóla Grindavíkur segir enn unnið að útfærslu skólastarfs barna í Grindavík. Best væri að finna aðstöðu svo börnin geti haldið hópinn, frekar en að dreifa þeim á milli skóla. 13.11.2023 11:04