Jarðgöng undir Miklubraut fýsilegri kostur Verkefnastjóri á höfuðborgarsvæði Vegagerðarinnar segir jarðgangagerð undir Miklubraut með tengingu við Kringlumýrarbraut hafa ýmsa kosti fram yfir stokk. Gangagerð myndi raska umferð minna á framkvæmdatíma og bjóða upp á meira pláss til borgarþróunar. 3.7.2024 20:55
Öldrun heimilislækna og fólksfjölgun valda læknaskorti Skort á heimilislæknum má meðal annars rekja til þess hversu margir þeirra eru að láta af störfum vegna aldurs og örar fjölgunar landsmanna, að sögn formanns Félags íslenskra heimilislækna. Af þessum sökum hafi ekki tekist að fullmanna heilsugæslustöðvar sem eigi að vera fyrsti viðkomustaðurinn í heilbrigðiskerfinu. 3.7.2024 11:53
„Nöturlegt“ ef Barnasáttmálinn grípur ekki Yazan Ásmundur Einar Daðason mennta- og barnamálaráðherra segir nöturlegt ef réttindi barna og barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna grípi ekki fatlaðan ellefu ára dreng sem hefur verið vísað frá landinu. Brottvísun drengsins hefur verið frestað fram yfir verslunarmannahelgi og lögmaður fjölskyldu hans hefur óskað eftir endurupptöku á máli hans. 2.7.2024 15:11
Ríkisstjórnin líði fyrir efnahagsástandið Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, segir fylgistap flokksins ekki góð tíðindi og tekur fram að ríkisstjórnarflokkarnir líði fyrir háa verðbólgu og vaxtastig. Hann er vongóður um að fylgi flokksins aukist næsta vetur. 2.7.2024 13:04
Samningur stærsta félags BHM gæti hreyft við öðrum félögum Viska, nýtt stéttarfélag innan Bandalags háskólamanna, gekk fyrst félaga bandalagsins frá kjarasamningi í gær. Formaður BHM segir ekki ólíklegt að samningurinn komi hreyfingu á viðræður annarra félaga sem enn eiga eftir að semja við ríki mög sveitarfélög. 1.7.2024 11:56
Vilhjálmur kallar eftir tafarlausri vaxtalækkun Formaður Starfsgreinasambandsins segir efnahagslífið á leið í miklar ógöngur verði vextir ekki lækkaðir mjög hratt. Í miklum húsnæðisskorti væru nýbyggingar hægt og bítandi að stöðvast vegna þess hvað vextir væru háir miðað við verðbólgu. Viðskiptabankarnir gætu gengið á undan með góðu fordæmi og lækkað sína vexti strax. 27.6.2024 11:43
Borgin kynnir þéttingu byggðar í úthverfum Borgarstjóri kynnti í dag áform um nýtingu lóða í helstu úthverfum borgarinnar til að auka lóðaframboð til smærri verkefna. Fullbúnum íbúðum í borginni hefur fækkað á undanförnum árum. Borgarstjóri segir að með þessum áherslum verði aukin fjölbreytni og kraftur settur í húnsæðisuppbygginguna. 26.6.2024 19:31
Forsætisráðherra vongóður um samkomulag um stjórnarskrárbreytingar Forsætisráðherra tekur undir með forseta Íslands með að skerpa megi á ýmsum ákvæðum stjórnarskrárinnar varðandi embætti forseta. Hann geri sér vonir um að samkomulag náist milli flokka á þingi stjórnarskrárbreytinigar. 26.6.2024 15:00
Sjálfstæðisflokkur aldrei mælst með minna fylgi Sjálfstæðisflokkurinn hefur aldrei mælst með minna fylgi en nú í nýrri könnun Maskínu. Þingflokksformaður Miðflokksins þakkar staðfestu flokksins í útlendingamálum, orkumálum og ríkisfjármálum að hann hefur fest sig í sessi sem þriðji stærsti flokkurinn á Íslandi. Sjálfstæðisflokkurinn líði fyrir að hafa verið í vinstristjórn í sjö ár. 26.6.2024 12:24
Framkvæmdum ljúki „vonandi fyrir verslunarmannahelgi“ Vegagerðin stefnir að því að ljúka framkvæmdum við gatnamót Kringlumýrar- og Miklubrautar fyrir verslunarmannahelgi, þannig að umferð tefjist ekki lengur við þessi fjölförnustu gatnamót landsins. 25.6.2024 19:55