Fréttamaður

Freyja Þórisdóttir

Freyja er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Lýsa upp­götvuninni sem gríðar­stórum „hvalakirkjugarði“

Í suðaustanverðu Indlandshafi á um sjö kílómetra dýpi hafa vísindamenn uppgötvað eitthvað sem lýst er sem gríðarstórum „hvalakirkjugarði“. Þar hafa þegar verið taldar hátt í fimm hundruð hvalaleifar á svæði sem teygir sig yfir um tólf hundruð kílómetra. 

Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofning innan flokksins

Guðmundur Andri telur ekki rétt að kalla ágreining sem undanfarið hefur myndast innan raða Samfylkingarfólks klofning. Hann segist þó halda að nýleg stefnubreyting, kröpp hægri beygja, hafi ekki verið nægilega mikið rædd á vettvangi flokksins. Guðmundur er einn þeirra sem skrifuðu undir skoðanapistil þar sem hópur félagsmanna Samfylkingarinnar og óflokksbundins jafnaðarfólks mótmælir brottfararstöð ríkisstjórnarinnar.

Björg­vin kjörinn nýr for­maður FHG

Björgvin Jóhannesson hefur verið kjörinn nýr formaður FHG, Fyrirtækja í hótel- og gistiþjónustu. Hann tekur við af Kristófer Oliverssyni sem hefur gegnt formennsku frá stofnun FHG árið 2018.

Fyrsta hækkun stýrivaxta í Evrópu síðan árið 2023

Seðlabanki Evrópu (ECB) hefur nú hækkað stýrivexti í fyrsta sinn í nærri þrjú ár í von um að sporna gegn verðbólgu. Bankinn er sá fyrsti af mörgum stærstu seðlabönkum heims til að bregðast við hinu svokallaða orkuáfalli en eldsneytisverð hefur rokið upp undanfarna mánuði vegna stríðsins í Íran. Hagfræðingar hafa undanfarið deilt um hvort ákvörðunin sé réttlætanleg.

Marteinn Helgi Sigurðs­son er látinn

Marteinn Helgi Sigurðsson, doktor í norrænum miðaldafræðum við Cambridge-háskóla, er fallinn frá, fimmtíu og fimm ára að aldri. Heimildarmyndin Veðurskeytin er byggð á reynslu Marteins en hann greindist skyndilega með geðhvörf fyrir nokkrum árum og fjallar myndin um vegferð hans í kjölfar greiningarinnar. Marteinn greindist með krabbamein á lokastigi fyrir um tveimur árum og voru honum einungis ætlaðir nokkrir dagar ólifaðir.

Stelpurnar í Kjólum og konfekti spá fyrir um úr­slit HM

Heimsmeistaramótið í fótbolta hefst á morgun, fimmtudaginn 11. júní, en meðal þeirra sem hafa sest niður, rætt sín á milli og loks spáð fyrir um hvernig úrslit mótsins fara eru stelpurnar í fataversluninni Kjólum og konfekti. Sex kjólar í fánalitum skarta sem stendur búðarglugga verslunarinnar og segist eigandi aldrei hafa séð eins marga karlmenn stoppa við búðargluggann til að virða kjólana fyrir sér.

Hæsti­réttur hafnar beiðni Elju um að taka fyrir meið­yrða­mál

Hæstiréttur hefur hafnað áfrýjunarleyfisbeiðni Elju starfsmannaþjónustu vegna dóms Landsréttar í máli sem til kom vegna ummæla Hjálmars Friðrikssonar blaðamanns í frétt á Samstöðinni. Ummælin voru í tengslum við andlát sextugs Pólverja í bruna á Funahöfða í október 2023 en í máli Elju er fjallað um að Hjálmar hafi gengið hvað lengst þegar hann skrifaði að nútíma þrælahald, sem Elja stundi, hafi „nú dregið mann til dauða á Íslandi.“

Ferðum Ís­lendinga til út­landa fækkar

Frá áramótum hafa brottfarir Íslendinga verið um fimmtíu og níu þúsund, en það eru 11 prósent færri brottfarir en í maí síðasta árs. Samkvæmt nýjustu tölum Ferðamálastofu voru um hundrað sextíu og þrjú þúsund brottfarir erlendra farþega frá Keflavíkurflugvelli í maí. Það er svipaður fjöldi og í sama mánuði í fyrra. 

Frá­bær árangur Teits í al­þjóð­legri keppni

Teitur Mar M. Steinunnarson tók þátt í alþjóðlegri stærðfræðikeppni í vor og fékk á dögunum þær fréttir að hann hefði landað fyrsta sætinu í sínum skóla, öðru sætinu í Galisíuhéraði og tíunda sæti á öllum Spáni í sínum aldursflokki. Teitur, sem er þrettán ára, flutti þriggja ára gamall til Spánar ásamt fjölskyldu sinni og talar í dag spænsku, galísku, ensku og íslensku. Þá er hann stoltur af Íslandstengingu sinni og nýtir hvert tækifæri til að minnast á Ísland í skólaverkefnum.

Bjóða bæjar­búum á bakgarðstónleika

Sjómannadagurinn verður haldinn hátíðlegur víða um land á morgun en dagskrá ýmissa bæjarfélaga er þegar hafin. Á Eskifirði hafa hjónin Valli og Elín boðið gestum og gangandi heim til sín á bakgarðstónleika.

Sjá meira