

Fréttamaður
Elísabet Inga Sigurðardóttir
Elísabet Inga er fréttamaður á Stöð 2, Vísi og Bylgjunni.
Nýjustu greinar eftir höfund

Kvöldfréttir Stöðvar 2
Kjaraviðræðum breiðfylkingar ASÍ og Samtaka atvinnulífsins hefur verið slitið og deilunni vísað formlega til ríkissáttasemjara. Frost er komið í viðræðurnar. Við ræðum við verkalýðsforingja í fréttatímanum.

Mygla í Blóðbankanum hafi ekki áhrif á starfsemi bankans
Mygla greindist í Blóðbankanum í sumar. Læknir segir ekkert benda til þess að mygla og raki hafi áhrif á blóð sem geymt er í bankanum, loftgæði séu góð í húsinu og forsvaranlegt að halda starfseminni áfram. Öryggi starfsmanna, blóðgjafa og starfseminnar sé tryggt.

Neituðu að fara út í kuldann
Hópur heimilislausra manna fór í setuverkfalli í gistiskýlinu á Granda í morgun. Þeir mótmæltu því að skýlinu sé lokað klukkan tíu í frosthörku þegar flestir liggi í flensu. Formaður Velferðarráðs hjá Reykjavíkurborg segir aðstöðu í skýlinu ekki fullnægjandi á daginn. Neyðaropnun hafi verið virkjuð og boðið upp á úrræði og þjónustu í Samhjálp yfir daginn.

„Enginn íslenskur listamaður þvingaður til þátttöku í Eurovision“
Það verður enginn íslenskur tónlistarmaður þvingaður til þátttöku í Eurovision. Þetta sagði útvarpsstjóri eftir mótmæli tónlistarfólks við Ríkisútvarpið í dag. Minnst 550 tónlistarmenn vilja að RÚV beiti sér fyrir því að Ísraelum verði meinuð þátttaka í keppninni ellegar dragi Íslendingar sig úr henni.

Allar götur í Reykjavík ættu að vera færar
Götur í Reykjavík ættu að vera greiðfærar eftir snjókomu næturinnar að sögn fulltrúa hjá borginni. Færð er þó víða erfið vegna hálku og gul viðvörun í gildi.

Fjöldi banaslysa það sem af er ári ekki sést í áratugi
Fjöldi þeirra banaslysa sem orðið hafa í umferðinni á árinu hefur ekki sést frá því að skráning slysa hófst fyrir fimmtíu árum.

Takmarkanir á upplýsingaöflun um möguleg tengsl við hryðjuverkasamtök
Upplýsingar um möguleg tengsl fólks, sem dvelur hér á landi, við hryðjuverkasamtök eru daglega í skoðun hjá lögreglu og verkefnið verður sífellt stærra, að sögn aðstoðaryfirlögregluþjóns. Einn sem talinn er tengjast samtökunum ISIS var handtekinn fyrir helgi og sendur úr landi.

Lítill gangur í viðræðum
Formaður félags stjórnar fagfélaga telur að ekki beri mikið í milli í kjaradeilu þess og Samtaka atvinnulífsins. Lítill gangur hafi þó verið í viðtæðum og því hafi ákvörðun verið tekin um að koma deilunni í formlegt ferli hjá ríkissáttasemjara.

Segir íbúa þurfa lausnir en ekki hrós: „Þú sleppir börnunum þínum ekki út úr húsi“
Íbúi við Efrahóp í Grindavík segir íbúa þurfa að heyra eitthvað annað en hvað þeir séu þrautseigir og duglegir. Nú þurfi þeir að fá raunhæfar lausnir frá stjórnvöldum. Þeir geti ekki lifað í biðstöðu. Hún ætlar ekki að flytja aftur í bæinn.

32 naggrísum komið fyrir á fósturheimili
Sjálfboðaliðar hjá Dýrahjálp Íslands forðuðu 32 naggrísum frá aflífun með því að koma þeim úr óupphituðu hesthúsi og yfir á fósturheimili. Þeir leita nú að framtíðarheimili.