Fréttamaður

Elísabet Inga Sigurðardóttir

Elísabet Inga er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Fær ekki lög­bundna þjónustu og ó­vissa um fram­tíð lista­verks

Maður sem hlaut mænuskaða eftir slys á mótórhjóli fyrir þremur árum síðan fær ekki þá NPA-þjónustu sem hann á rétt á þótt að hún hafi verið samþykkt fyrir átta mánuðum síðan. Hann hefur til að mynda ekki getað hitt dóttur sína í tvö ár og legið ítrekað í eigin þvagi klukkutímum saman vegna skorts á aðstoð.

Mót­mæla hval­veiðum

Fimm samtök munu mótmæla hvalveiðum við Reykjavíkurhöfn í dag. Formaður Hvalavina segir von á einhverjum atriðum eða ræðum en vill ekki gefa upp um eðli þeirra.

Berg­mál, bið­listar og bongóblíða

Tónlistarhátíðin Bergmál á Þingvöllum heppnaðist vel að sögn lögreglu og komu engin meiriháttar mál á hennar borð. Nokkuð var um slagsmál en ekkert meiriháttar og var enginn handtekinn. Umferð gekk vel þrátt fyrir að hún hafi gengið löturhægt.

Bíll við bíl að Þing­völlum og um­ferð hreyfist hægt

Töluverð umferð er á Þingvallasvæðinu að sögn Péturs Sveinssonar, varðstjóra í umferðardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.  Samkvæmt ábendingum til fréttastofu sem og fréttamanni á vettvangi er nú bíll við bíl að Þingvöllum. Umferð hreyfist nú hægt.

Aukin hætta á skriðum og grjót­hruni

Lögreglan á Norðurlandi vestra segir aukna hættu á skriðum og grjóthruni, meðal annars í Almenningum, vegna mikillar úrkomu síðustu daga. 

Til skammar að málið hafi sofnað í með­ferð þingsins

Fjögur ár er síðan nefnd á vegum forsætisráðherra sagði sterkar vísbendingar um að fatlað fólk og fólk með geðrænar áskoranir hefði sætt illri meðferð á stofnunum. Velferðarnefnd Alþingis átti að vinna að næstu skrefum en svo hefur ekkert gerst. Framkvæmdastjóri geðhjálpar segir málið til skammar.

Fjöldi bíður niður­stöðu og stór stund á Þing­völlum

Fjögur ár er síðan nefnd á vegum forsætisráðherra sagði sterkar vísbendingar um að fatlað fólk og fólk með geðrænar áskoranir hefði sætt illri meðferð á stofnunum. Velferðarnefnd Alþingis átti að vinna að næstu skrefum en svo hefur ekkert gerst. Framkvæmdastjóri geðhjálpar segir málið til skammar.

Sjötugar á TikTok og elska fíflaganginn

Sífellt fleiri fulltrúar eldri kynslóðarinnar hafa látið til sín taka á samfélagsmiðlinum TikTok að undanförnu. Tvær sjötugar konur segja miðilinn stórskemmtilegan þrátt fyrir að þær þykist ekkert kunna á hann. Þær skilji ekki hvernig fólk nenni að horfa á vitleysuna í þeim.

Sjá meira