Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Skjálfti að stærðinni 5,0 mældist um þrjá kílómetra vestsuðvestur af Fagradalsfjalli í nótt. Skjálftinn er sá stærsti í nokkra daga. Bæjarstjóri Grindavíkur segir að nokkrir íbúar hafi leigt sér hótelherbergi eða sumarbústað yfir helgina til að fá frí frá skjálftahrinunni sem ekkert lát virðist á. 7.3.2021 11:32
Hundur féll af svölum á fimmtu hæð á Laugavegi Vegfarendum sem áttu leið um Laugaveg síðdegis í gær brá nokkuð í brún þegar þeir sáu hund sem lá illa slasaður í blóði sínu. Hundurinn hafði fallið niður af svölum á fimmtu hæð og niður á götu. Hundurinn mun hafa lifað fallið af en dáið síðar um daginn af sárum sínum. 7.3.2021 10:22
Ekkert sýni úr sauðfénu sem fellt var í haust reyndist jákvætt fyrir riðuveiki Af rúmlega þúsund sýnum, sem voru rannsökuð úr getum og sauðkindum sem skera þurfti niður vegna riðuveiki á bænum Grænumýri í Skagafirði í haust, reyndist ekkert þeirra vera jákvætt. Bóndinn segir þetta bæði góð tíðindi og slæm en mörgum spurningum ósvarað. Hann segir samningaviðræður við ríkið hafa gengið bæði hægt og illa en ennþá hefur ekkert býli fengið greiddar bætur vegna niðurskurðarins. 6.3.2021 18:30
Gætum séð fram á virknitímabil sem spannar árhundruð Enn er full ástæða til að hafa gætur á vegna jarðhræringanna á Reykjanesi að sögn jarðeðlisfræðings. Skjálftavirkni sé enn mikil þrátt fyrir að fólk finn ef til vill minna fyrir skjálftum eins og staðan er núna. Það kunni að vera að framundan sé ákveðið virknitímabil á Reykjanesskaganum sem gæti spannað nokkur hundruð ára tímabil. 6.3.2021 16:03
Stjórnvöld þyrftu að koma að ákvörðun um að hætta útburði bréfa Íslandspóstur getur ekki tekið einhliða ákvörðun um að hætta að bera út bréfpóst. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslandspósti sem barst upp úr hádegi í dag þar sem segir að Íslandspóstur sé ekki að íhuga að hætta að bera út bréfpóst líkt og ráða mátti af fréttum í morgun. 6.3.2021 13:38
Íslandsbanki hækkar fasta vexti húsnæðislána en fellir niður lántökugjöld af „grænum húsnæðislánum“ Frá og með næsta þriðjudegi hækka fastir vextir óverðtryggðra lána hjá Íslandsbanka. Þá taka jafnframt gildi breytingar á vaxtatöflu bankans sem fela í sér að ekkert lántökugjald verður innheimt af svokölluðum grænum húsnæðislánum auk þess sem 0,10% vaxtaafsláttur verður veittur af slíkum lánum. 6.3.2021 13:01
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Bæjarstjóri í Grindavík segir rafmagnsleysið í gærkvöldi óviðunandi á viðkvæmum tímum fyrir íbúa Grindavíkur. Fjallað verður um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar en bæjarstjóri hyggst funda um málið með HS Veitum á mánudaginn. 6.3.2021 11:47
Hefði ekki átt að vera rafmagnslaust svona lengi Egill Þorsteinn Sigmundsson, Sviðsstjóri rafmagnssviðs hjá HS Veitum, segir ólíklegt að rafmagnsleysið í Grindavík megi rekja til jarðhræringa á Reykjanesi. Það sé fyrst og fremst óheppni að rafmagni hafi slegið út í Grindavík á þessum tímapunkti. Töluvert langan tíma tók að finna bilunina sem olli rafmagnsleysinu. Rafmagnslaust var í um átta til tíu klukkustundir í gær. 6.3.2021 11:32
Listamennirnir sem koma fram á Aldrei fór ég suður Þrettán tónlistarmenn og hljómsveitir munu koma fram á tónlistarhátíðinni Aldrei fór ég suður sem fram fer á Ísafirði um páskana. Í fyrra fór hátíðin fram með óhefðbundnum hætti í ljósi kórónuveirufaraldursins en í ár stendur til að halda hátíðina með áhorfendum í sal. 6.3.2021 10:12
Íslandspóstur íhugar að hætta að bera út bréf Ein leiðin sem hægt væri að fara ef ganga á lengra í hagræðingu hjá Íslandspósti kæmi til greina að hætta að bera bréf inn um hverja lúgu. Þetta segir Þórhildur Ólöf Helgadóttir, forstjóri Íslandspóst, í Morgunblaðinu í dag. 6.3.2021 09:36
Slagsmál stuðningsmanna fyrir utan Ölver: „Allir með grímu fyrir andlitið og réðust á okkur“ Fótbolti
Tapsárir Danir lentu í skærum við lögreglu: Piparúða beitt, ferðaklósetti velt og fimm milljón króna tjón Fótbolti