

Fréttamaður
Eiður er fréttamaður á Vísi, Stöð 2 og Bylgjunni.
Nýr bar hefur verið opnaður við Snorrabraut í Reykjavík og ber hið viðeigandi heiti Snorrabar. Rekstrarstjóri vill bjóða upp á notalegan og stílhreinan hverfisbar með reglulegum tónlistarviðburðum.
Starfsemi hefst í Bláa lóninu og hjá Northern Light Inn að öllu óbreyttu í fyrramálið. Þá verður rýmingu Grindavíkur aflétt og íbúum sem og öðrum sem eiga þangað erindi hleypt aftur inn í bæinn. Ríkislögreglustjóri hefur fært almannavarnastig af neyðarstigi niður á hættustig. Verulega hefur dregið úr krafti gossins og hraun rennur ekki suður í átt að Grindavík.
Tengsl voru milli hins grunaða og eldri hjóna sem fundust látin á Neskaupstað í gær. Notast er við gögn um kreditkortanotkun og ferðir hins grunaða til að reyna að ná utan um atburðarásina.
Langisjór ehf. keypti í dag sex milljónir hluta í Eik fasteignafélagi hf. og 442 milljónir hlutabréfa í félaginu af Brimgörðum ehf. Fer Langisjór og samstarfsaðilar nú með 1.029.061.237 hluta í Eik sem nemur um 30,06 prósent atkvæðisréttar í fasteignafélaginu.
Eldgos hófst á Sundhnúksgígaröðinni klukkan 21:26 í gær í kjölfar öflugrar skjálftahrinu. Gossprungan er um sjö kílómetra löng en ekki virk alla leiðina. Gossprungan nær norðar en í síðustu gosum. Hraun rennur ekki í átt að Grindavík og eru allir helstu innviðir taldir öruggir eins og er.
Mælingar benda til að hraunflæði eldgossins sem hófst í Sundhnúksgígaröðinni í kvöld sé um 1.200 til 1.500 rúmmetrar á sekúndu. Gert er ráð fyrir því að hraun nái fljótlega að Grindavíkurvegi.
Eiríkur Óli Dagbjartsson og Sólveig Ólafsdóttir voru stödd á heimili sínu í Grindavík þegar eldgos hófst í kvöld. Þau eru nú í Hveragerði en þetta er í annað sinn sem þau þurfa að flýja heimili sitt þegar eldsumbrot hefjast.
Eldgos hófst á Sundhnúksgígaröðinni klukkan 21:26 fimmtudaginn 22. ágúst eftir að öflug jarðskjálftahrina byrjaði klukkan 20:48. Stuttu eftir að fyrstu merki sáust um kvikuhlaup eða eldgos hófst rýming í Grindavík, Svartsengi og við Bláa lónið. Rýmingu var lokið um 40 mínútum síðar.
Lágvöruverðsverslunin Prís hefur hrist upp í markaðnum og mælist oftast með lægra vöruverð en Bónus. Af um 280 vörum sem Verðlagseftirlit ASÍ skoðaði í dag voru um 200 ódýrari í Prís.
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segist rólegri um sinn eftir að hafa fengið fregnir af afdrifum sonar síns. Alþjóðalögreglan Interpol lýsti eftir Þóri Kolka Ásgeirssyni eftir að fjölskyldan leitaði til lögreglu en þá hafði hún ekki heyrt frá honum í nokkrun tíma.