Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Kvika banki mun greiða út sérstaka arðgreiðslu til hluthafa upp á rúma 10 milljarða króna. Tillaga þess efnis var samþykkt á hluthafafundi í dag. Í hádeginu tilkynnti bankinn að ellefu starfsmönnum hefði verið sagt upp störfum í hagræðingaraðgerðum. Alls hefur stöðugildum fækkað um átján það sem af er ári. 4.6.2026 20:31
Stærstu skjálftar á svæðinu frá 2008 Tveir jarðskjálftar að stærð 3,8 og 3,3 mældust rétt norðvestur af Þórisjökli um klukkan 23:08 í kvöld. Um er að ræða stærstu skjálfta sem mælst hafa á þessu svæði frá því í maí 2008. 4.6.2026 00:44
Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Ný tæknilausn mun gera fólki kleift að kaupa vörur fyrir fimmtíu þúsund krónur í verslun þrátt fyrir að nettenging eða greiðslukortakerfi liggi niðri. Varaleiðin mun ekki virka með snertilausum greiðslum í fyrstu og því þarf fólk sem hefur lengi skilið kortið eftir heima fljótlega að taka það með sér til að búa sig undir kerfistruflanir framtíðarinnar. 3.6.2026 23:03
Áslaug getur fengið tæpar tíu milljónir í biðlaun Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir á rétt á tæpum tíu milljónum króna í biðlaun eftir að hún sagði af sér þingmennsku í dag. Hún kláraði nýverið nám við Columbia-háskóla í New York og fékk þingfararkaup í um tvo mánuði síðasta sumar. Áslaug segist vilja fara vel með almannafé og fylgja þeim reglum sem gildi. Hún vill ekki tjá sig um það hvort hún hafi átt í viðræðum um ný atvinnutækifæri. 3.6.2026 20:08
Krakkatía vikunnar: Kóngur, kýr og mávagarg Hversu vel fylgist þú með? Spreyttu þig á Krakkatíunni! Í henni beinum við kastljósinu bæði að því sem gerðist síðustu daga og öðrum spurningum úr ýmsum áttum. 31.5.2026 06:02
Fréttatía vikunnar: Verðbólga, eldflaug og Dior Hversu vel fylgdist þú með fréttum í vikunni sem leið? Spreyttu þig á Fréttatíunni til þess að komast að því. Í Fréttatíu vikunnar beinum við kastljósinu bæði að því sem gerðist hér heima og erlendis. 30.5.2026 06:02
Konan komin í leitirnar Kona sem lögreglan á Suðurnesjum lýsti eftir fyrr í kvöld er fundin. Lögreglan hyggst ekki veita frekari upplýsingar um málið. 27.5.2026 21:23
Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum Miðflokksmenn hafa skipst á að koma í pontu í þingsal í dag til að ræða þingsályktunartillögu um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið. Ljóst þykir að meirihlutanum liggur á að koma málinu í gegnum þingið svo fyrirhuguð dagsetning atkvæðagreiðslu standist. 27.5.2026 21:00
Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Lögregla var kölluð út í Hlíðar í Reykjavík í dag þegar tilkynning barst um slagsmál. Deildu einstaklingar þar um bifreiðastæði að sögn laganna varða sem veita ekki frekari upplýsingar um atvikið. 27.5.2026 19:07
Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Það dró til tíðinda í morgun þegar fréttamenn voru kallaðir út í Viðey ellefu dögum eftir borgarstjórnarkosningar. Blaðamannafundurinn var boðaður með skömmum fyrirvara og þurfti fjölmiðlafólk að hafa snör handtök líkt og oft áður til að geta miðlað viðburðinum til landsmanna. Þétt var setið í Viðeyjarferjunni á ellefta tímanum og fylgdu svo fleiri borgarfulltrúar í kjölfarið. 27.5.2026 18:52