Vilja ekki greiða fyrir notkun ganga sem uppfylla ekki öryggiskröfur Líkt og greint hefur verið frá síðustu vikur stefnir innviðaráðuneytið á að hefja gjaldtöku í öllum göngum landsins til þess að fjármagna Fjarðarheiðargöng. Formaður bæjarráðs Fjallabyggðar setur spurningamerki við aðferðafræðina. 8.8.2022 22:45
Lars von Trier með Parkinson Danski kvikmyndaleikstjórinn Lars von Trier hefur greinst með Parkinson. Leikstjórinn umdeildi hefur unnið til fjölda verðlauna fyrir kvikmyndir sínar en myndir hans hafa sjö sinnum verið valdar besta myndin á dönsku Bodil-verðlaununum. 8.8.2022 20:28
Olivia Newton-John er látin Söng- og leikkonan Olivia Newton-John er látin, 73 ára að aldri. John Easterling, eiginmaður hennar, segir hana hafi látist friðsamlega í morgun umkringd vinum og fjölskyldu. Hún hafði barist við brjóstakrabbamein síðustu þrjátíu ár. 8.8.2022 19:36
Tveir Íslendingar í gæsluvarðhaldi í Danmörku Tveir Íslendingar eru í gæsluvarðhaldi í Danmörku eftir að hafa ráðist á annan íslenskan mann um helgina. Maðurinn liggur þungt haldinn á Háskólasjúkrahúsinu í Álaborg. 8.8.2022 18:55
Fær annan lífstíðardóm fyrir morðið á Arbery Travis McMichael var í dag dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir að fremja hatursglæp er hann myrti Ahmaud Arbery árið 2020 vegna litarháttar hans. Morðið framdi McMichael með tveimur öðrum karlmönnum en allir eru þeir hvítir en Arbery var svartur. 8.8.2022 18:11
Vægasti skammtur melatóníns verði ekki lyfseðilsskyldur Melatónín í lægri styrk en eitt milligramm á dag verður ekki lengur flokkað sem lyf heldur fæðubótarefni samkvæmt svari Lyfjastofnunar við álitsbeiðni Matvælastofnunar (MAST). Melatónín í hærri styrk en það verður áfram flokkað sem lyf. 8.8.2022 17:30
Giftu sig degi of snemma Þýsku hjónin Julija og Michael Domaschke voru gefin saman við Skógafoss á þriðjudaginn í síðustu viku. Hjónin trúlofuðu sig einnig hér á landi og fór Michael á skeljarnar við eldgosið í Fagradalsfjalli í júlí á síðasta ári en þau eru bæði mjög áhugasöm um eldgos og eldfjöll. Daginn eftir að þau giftu sig hóf að gjósa í Meradölum. 7.8.2022 23:00
Færeyingar segja nei takk við Herjólfi III Færeyingar hafa stofnað undirskriftarlista þess efnis að fá annað skip en Herjólfur III til þess að sigla milli Þórshafnar og Suðureyjar á meðan ferjan Smyril fer í slipp. Ekki sé nægt pláss í Herjólfi til að hann leysi Smyril af. 7.8.2022 16:16
Áfram lokað til morguns Lokað verður inn á gossvæðið áfram í kvöld vegna veðurs. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum. 7.8.2022 15:13
Áttatíu þúsund ferðamenn strandaglópar á „kínversku Hawaii“ Útgöngubann var sett á í borginni Sanya í Kína í gær eftir að 263 kórónuveirusmit greindust þar. Um það bil áttatíu þúsund ferðamenn eru nú staddir í borginni og komast þeir ekki neitt án þess að skila af sér fimm neikvæðum PCR-prófum á sjö dögum. 7.8.2022 14:39