Laumaði Lars framhjá dyravörðum og starfsfólki Heimilisbangsanum á pílustaðnum Bullseye við Snorrabraut var stolið í gærkvöldi. Rekstrarstjórinn segir málið vera dapurlegt í alla staði og skorar á þjófinn að skila bangsanum. 28.8.2022 23:01
„Frumbygginn í holunni“ er látinn Maður sem hefur ávallt verið kallaður „frumbygginn í holunni“ og bjó í Amason-regnskóginum allt sitt líf er látinn. Hann var síðasti meðlimur ættbálks síns sem enn var á lífi. 28.8.2022 22:24
Hundrað metra háhýsi felld og þúsundir fylgdust með Gríðarlegur viðbúnaður var í úthverfi Nýju-Delí á Indlandi í dag þegar tvö háhýsi voru sprengd í loft upp. Hæstiréttur Indlands úrskurðaði að blokkirnar skyldu jafnaðar við jörðu þar sem þær uppfylltu ekki byggingareglugerðir. 28.8.2022 21:48
Fyrrverandi konditor Hvíta hússins er látinn Roland Mesnier, fyrrverandi konditor Hvítahússins, lést á föstudaginn eftir skammvinn veikindi, 78 ára að aldri. Mesnier matreiddi ljúffengt góðgæti ofan í fimm Bandaríkjaforseta á ævi sinni. 28.8.2022 21:05
Meintur ísbjörn reyndist vera selur Ferðamenn í Hornvík tilkynntu lögreglunni á Vestfjörðum að þau töldu sig hafa séð ísbjörn á landi. Þyrla Landhelgisgæslunnar flaug yfir svæðinu en meinti ísbjörninn var líklegast hvítur útselur. 28.8.2022 20:14
Ljóst að stjórnendur hafi átt að gera betur Skólanefnd Fjölbrautaskóla Suðurlands sendi frá sér yfirlýsingu rétt í þessu og viðurkennir að stjórnendur skólans og nefndin hafi átt að gera betur í tengslum við viðbrögð sín og miðlun upplýsinga um þau til nemenda, foreldra og fjölmiðla vegna meints kynferðisbrot innan veggja skólans. 28.8.2022 19:58
Jón Kalman og Sigríður Hagalín orðin hjón Rithöfundarnir Jón Kalman Stefánsson og Sigríður Hagalín Björnsdóttir gengu í það heilaga í gær. Þau fögnuðu með vinum og fjölskyldu í Iðnó í gærkvöldi. 28.8.2022 19:08
Hollenskir hermenn skotnir við hótel í Indianapolis Þrír hollenskir hermenn fundust með skotsár fyrir utan hótel í borginni Indianapolis í Indiana-ríki í nótt. Mennirnir voru staddir í borginni vegna æfinga hersins á svæðinu. 28.8.2022 18:08
Dýrasta hafnaboltaspjald sögunnar Safnkort af hafnaboltastjörnunni Mickey Mantle seldist í dag á uppboði á 12,6 milljónir dollara, tæpan 1,8 milljarð íslenskra króna. Með sölunni varð spjaldið að dýrasta hafnaboltaspjaldi sögunnar. 28.8.2022 17:33
Arnór Heiðar nýr forseti UJ Arnór Heiðar Benónýsson var í dag kjörinn forseti Ungs jafnaðarfólks á landsþingi samtakanna og tekur við embættinu af Rögnu Sigurðardóttur. Á þinginu var einnig kjörið í bæði framkvæmdastjórn og miðstjórn samtakanna. 27.8.2022 22:57