Ráðherra boðar aukið eftirlit Taka þarf á agaleysi í útgjöldum ríkisstofnana segir fjármálaráðherra sem boðar verulega aukið eftirlit. Þingstörf hófust á ný í morgun þegar ráðherra mælti fyrir hallalausum fjárlögum. Þingmenn stjórnarandstöðunnar gagnrýndu gjaldahækkanir og óttast að sveitarfélög muni fylgja fordæmi ríkisins. 10.9.2026 11:46
Játar aðild að einu stærsta Bitcoin-þjófnaðarmáli sögunnar Tuttugu og tveggja ára maður frá Singapúr hefur játað aðild að einu stærsta Bitcoin-þjófnaðarmáli sögunnar. 10.9.2026 07:22
Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu Leikskólakennarar eru alvöru kennarar segir formaður svæðadeildar leikskólakennara í Reykjavík og segir fólk í stéttinni slegið yfir orðum barna- og menntamálaráðherra í gær. 9.9.2026 11:44
Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Haraldur fimmti Noregskonungur verður borinn til grafar í dag. Fjöldi þjóðhöfðingja verður viðstaddur athöfnina, þar á meðal forseti Íslands. Búist er við að töluverður fjöldi leggi leið sína til Óslóar. 9.9.2026 08:02
Ekkert heitt vatn á Suðurnesjum í dag HS Veitur og HS Orka ráðast í viðamiklar framkvæmdir í dag og verður lokað fyrir heitt vatn á Suðurnesjum vegna þeirra. Búið er að skrúfa fyrir vatnið á hluta svæðisins. 9.9.2026 07:34
Bannar innflutning á kanadískum vörum Bandaríkjamenn hafa bannað innflutning á fjölda kanadískra vara, til að mynda áfengi, mjólkurvörum og mótorhjólum. Þetta er nýjasti liðurinn í viðskiptastríði nágrannaríkjanna en samband ríkjanna hefur sjaldan verið jafn slæmt og það er í dag. 9.9.2026 06:56
Vanti ekki fjármagn eða hjálpargögn heldur þrýsting á Ísrael Dr. Younis Al-Khatib, forseti palestínska Rauða hálfmánans, segir stöðuna skelfilega á Gasa í dag og hún versni bara. Hann segir ekki þörf á meira fjármagni eða hjálpargögnum en kallar eftir því að Ísland, og alþjóðasamfélagið allt, þrýsti á Ísrael að hleypa Rauða krossinum inn á Gasa með hjálpargögn og fólki út sem þarf á læknisaðstoð að halda. Al-Khatib segir stöðuna ekkert betri þó svo að samið hafi verið um vopnahlé á svæðinu í október í fyrra. 9.9.2026 06:46
Viðbrögð við sláandi PISA-könnun Árangur íslenskra nemenda í lesskilningi, stærðfræðilæsi og náttúruvísindum heldur áfram að versna samkvæmt niðurstöðum nýrrar PISA-könnunar. Samkvæmt niðurstöðunum ná 44 prósent nemenda ekki grunnfærni í lesskilningi og bæði í stærðfræðilæsi og náttúruvísindum ná 38 prósent íslenskra nemenda ekki grunnfærni. 8.9.2026 11:55
Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Starfsmenn Eiffelturnsins í París fóru í verkfall í gær og loka þurfti turninum eftir að kvenkyns starfsfólki var gert að yfirgefa stöðvar sínar vegna heimsóknar trúarhóps af hindúatrú. Stjórnendur hafa beðið starfsfólkið afsökunar. 8.9.2026 07:25
Reiðarslag, gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí“ Framkvæmdastjóri Samtaka í ferðaþjónustu segir fjárlagafrumvarp fyrir næsta ár fela í sér reiðarslag fyrir ferðaþjónustu á Íslandi en stór hluti tekjuaukningar ríkisins kemur frá ferðaþjónustunni. Aukin skattheimta séu gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí,“ sem nemi helmingi heildarafkomu greinarinnar árið 2024. 7.9.2026 14:03