Fréttamaður

Birgir Olgeirsson

Birgir er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Fram­boðin missi mögu­lega af leiðinni að hjarta kjós­enda

Kosningabaráttan í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga hefur einkennst af gervigreind, samfélagsmiðlabólum, endurunnu efni og upplýsingadrifnum auglýsingum þar sem frambjóðendur horfa mikið hver til annars. Stofnandi auglýsingastofunnar Tvist segir framboðin ekki endilega nýta sterkustu vopn auglýsinganna.

Árasin ein­kenndist af tals­verðri heift

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu vinnur nú að rannsókn máls sem varðar árás hóps ungmenna á konu við biðskýli í Mjóddinni á fimmtudag í síðustu viku. Hópur ungmennanna samanstendur af sex manns á aldrinum 14–16 ára sem eru til rannsóknar fyrir að hafa ráðist að konunni, sem er á fimmtudagsaldri, með höggum og spörkum.

Segir Krist­rúnu dreifa ó­sannindum um Sjálf­stæðis­flokkinn

Það má heldur betur segja að hiti sé að færast í borgarstjórnarkosningarnar en Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borginni, sakar Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra og formann Samfylkingarinnar, um að dreifa ósannindum um Sjálfstæðisflokkinn sem varðar sölu á orkuinnviðum.

Íris Helga neitar sök

Íris Helga Jónatansdóttir neitaði sök við þingfestingu á ákæru gegn henni í Héraðsdómi Reykjaness sem hófst klukkan 14 í dag.

„Þetta er bara venju­leg tauga­veiklun“

„Þetta er bara venjuleg taugaveiklun og það á að hræða borgarbúa frá því að kjósa Sjálfstæðisflokkinn,“ segir Brynjar Níelsson, sem skipar þriðja sæti lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkurborg, um skrif Þórðar Snæs Júlíussonar, framkvæmdastjóra þingflokks Samfylkingarinnar.

Vill að flokkar sýni á spilin fyrir sveitar­stjórnar­kosningar um sölu á orkuinnviðum

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, segir eðlilegt að flokkar geri kjósendum skýra grein fyrir afstöðu sinni til sölu á orkuinnviðum í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga. Hann segir umræðu um einkavæðingu fyrirtækja á borð við Rarik og Landsnet snerta hagsmuni íbúa víða um land og telur mikilvægt að línurnar liggi skýrt fyrir áður en gengið verður til kosninga.

Hand­tóku konu vopnaða hnífi

Lögregla og sérsveit ríkislögreglustjóra voru kölluð til í Skógarsel í Breiðholti fyrir hádegi í dag vegna tilkynningar um konu sem var vopnuð hnífi.

Lítið mál að halda jafn­vægi á 4.500 króna sófa

Félagarnir Egill Jón Agnarsson og Ísak Kukalj hafa vakið mikla athygli fyrir uppátæki sitt í síðustu viku þar sem þeir komu sófa fyrir á tveimur rafskútum frá Hopp og óku eftir Leirulæk í Laugardal. Þeir sáu myndband á Instagram þar sem nokkrir strákar höfðu gert slíkt hið sama. Þeir voru ekki lengi að ákveða sig, hoppuðu í Góða hirðinn, keyptu sófa á 4.500 krónur og „kýldu á þetta“.

Ung­menni réðust að konu með höggum og spörkum í Mjóddinni

Lögregla rannsakar hóp ungmenna á aldrinum 14 til 16 ára sem talin eru hafa ráðist á konu konu á fimmtugsaldri með höggum og spörkum í biðskýli í Mjóddinni í Reykjavík á fimmtudag. Lögregla segir hópinn áður hafa komið við sögu hjá lögreglu fyrir að vera með almenn leiðindi og dónaskap í Mjóddinni. 

Sjá meira