Þarf að greiða þriggja milljóna málskostnað parsins Ómari Valdimarssyni lögmanni hefur verið gert að greiða pari tæpar þrjár milljónir króna í málskostnað vegna máls sem Ómar hafði höfðað gegn parinu en gerði kröfu um niðurfellingu málsins við aðalmeðferð sem fallist var á. 11.3.2026 14:51
Spá 0,25 prósenta hækkun stýrivaxta Íslandsbanki spáir 0,25 prósenta hækkun stýrivaxta við næstu vaxtaákvörðun þann 18. mars. Versnandi skammtímaverðbólguhorfur og hækkandi verðbólguvæntingar eru taldar af bankanum munu þar ríða baggamuninn þótt talsverðar líkur séu á óbreyttum vöxtum og hertri framsýnni leiðsögn. Vaxtalækkunarferli verði síðar á ferð en áður var búist við. 11.3.2026 13:12
Stofna óháðan flokk og segja að Hildur muni víkja þeim úr nefndum og ráðum Kjartan Magnússon og Marta Guðjónsdóttir munu stofna óháðan borgarstjórnarflokk sem þau munu sitja í út kjörtímabilið. Þau munu þó líta á sig sem borgarfulltrúa Miðflokksins í ræðu og riti. Það liggur fyrir að Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins mun víkja þeim úr ráðum og nefndum. 11.3.2026 12:44
Brynja Dan í óvissu um oddvitasætið í Garðabæ Það stefnir í talsverða spennu hjá Framsóknarflokknum í Garðabæ á laugardag þegar uppstillingarnefnd kynnir lista flokksins fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Eins og staðan er í dag er vitað til þess að tveir hafi boðið sig fram sem oddvita flokksins, Brynja Dan Gunnarsdóttir, bæjarfulltrúi flokksins í Garðabæ, og Hlynur Bæringsson varamaður hennar. 11.3.2026 11:12
Kristrún vísar þögn um ESB-málið á bug Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segist ekki ætla að liggja á skoðunum sínum varðandi þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi viðræður við Evrópusambandið, þvert á fullyrðingar pólitískra andstæðinga hennar þar um. 10.3.2026 13:50
Krónan oftar en ekki sveiflast minna en dollar, evran og pundið Síðustu sex árin hefur íslenska krónan oftar en ekki sveiflast minna en ýmsir aðrir gjaldmiðlar, þar á meðal bandarískur dollar, Evran og breska pundið. Íslenska krónan hefur því ekki verið stór áhrifavaldur í því verðbólguástandi sem Íslendingar fást við í dag heldur sinnt sínu hlutverki vel sem fljótandi gjaldmiðill sem mýkir hagsveiflur. 10.3.2026 08:54
Óþolandi tafir vegna ágreinings við landeigendur heyri sögunni til Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, fór mikinn á iðnþingi Samtaka iðnaðarins í dag þar sem hann boðaði róttækar breytingar á raforkulögum. Breytingar miða að því að ágreiningur við landeigendur tefji ekki þjóðhagslega mikilvægar framkvæmdir um mörg ár. 5.3.2026 17:53
Breiðu bökin verði skattlögð svo forsendur kjarasamninga standist ASÍ mun ekki taka þátt í umræðum um niðurskurðaraðgerðir á velferðarkerfinu til að ná tökum á verðbólgu. Forseti ASÍ vill að horft sé til hinna breiðu baka í samfélaginu til að ná tökum á ástandinu svo forsendur kjarasamninga standist í haust. 5.3.2026 13:47
Lögregla bankar upp á vegna hótana í garð ráðamanna Lögreglan hefur þurft að hafa afskipti af fólki sem hefur haft í alvarlegum hótunum gagnvart ráðamönnum á Íslandi og fólki sem stígur fram í opinberri umræðu. 4.3.2026 15:51
Ríkisstjórnin fái kynningu um þjóðaratkvæði á föstudag Gera má ráð fyrir að utanríkisráðherra kynni þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna við Evrópusambandið fyrir ríkisstjórn á föstudag. 3.3.2026 16:20