Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið Ríkisendurskoðun segir að varnargarðarnir á Reykjanesi hafi sannað gildi sitt og sýnt með afgerandi hætti hvað Íslendingar geti verið úrræðagóðir á raunastundu. Um leið sé ljóst að stjórnsýslan utan um verkefnið hafi ekki verið nógu sterk, ábyrgð óskýr og fjármögnun of veik. Nú verði að draga af því skýran lærdóm áður en næsta vá skellur á, en ekki í miðju hraunflóði. 22.4.2026 11:56
Segir ráðherra fá of lausan taum í nýjum sóttvarnalögum Ný sóttvarnalög veita heilbrigðisráðherra heimild til að setja reglur um opinberar sóttvarnaráðstafanir, meðal annars um ónæmisörvanir á borð við bólusetningar, notkun hlífðarbúnaðar, afkvíun svæða, lokun skóla, stöðvun atvinnurekstrar og samkomubann. Brot gegn slíkum reglum getur varðað sektum eða allt að eins árs fangelsi. Sigurður Örn Hilmarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir Alþingi með þessu hafa fært ráðherra of víðtækar heimildir. 21.4.2026 18:37
Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur í Dettifossmálinu Gæsluvarðhald yfir þremur sakborningum í rannsókn lögreglu á innflutningi á fjórtán lítrum af amfetamínbasa með Dettifossi, gámaflutningaskipi Eimskips, hefur verið framlengt. Einn þeirra sætir varðhaldi í tvær vikur til viðbótar en hinir tveir, sem eru starfsmenn Eimskips, í eina viku hvor. 21.4.2026 15:24
Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Prentsmiðjan Ísafold hefur verið tekin til gjaldþrotaskipta og sautján starfsmenn missa vinnuna. Prentsmiðja Ísafoldar var elsta prentsmiðja landsins og jafnframt sú næststærsta en Ísafold sá hér áður fyrr um að prenta Fréttablaðið og prentaði 105 þúsund eintök 7 daga vikunnar þegar mest lét. 21.4.2026 13:49
Bak við lás og slá grunaður um risastórt kókaínsmygl Einn hefur verið úrskurðaður í sex vikna gæsluvarðhald vegna rannsóknar lögreglu á ætluðum innflutningi á miklu magni af fíkniefnum með Norrænu í lok mars. Lögregla heldur þétt að sér spilunum varðandi efnisatriði málsins. Verð á kókaíni hefur farið hækkandi undanfarin ár. 17.4.2026 11:49
Meitlarnir komust loks í forgang eftir stefnubreytingu Orkuveitan telur sig nú hafa fundið nýtt og afar vænlegt jarðhitasvæði á Meitlum á Hellisheiði sem gæti skipt verulegu máli fyrir orkuöflun á höfuðborgarsvæðinu. Tvær borholur hafa gefið mjög lofandi niðurstöður og hitinn á svæðinu mælist um 275 gráður. Enn á þó eftir að staðfesta fundinn með frekari rannsóknum, meðal annars þriðju borholu, áður en hægt verður að fullyrða um hversu stór auðlindin er og hvernig best verði staðið að nýtingu hennar. 16.4.2026 18:38
Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Stórfellt smyglmál um borð í Dettifossi er talið geta haft veruleg áhrif á fíkniefnamarkaðinn hér á landi, að sögn lögreglu. Lagt var hald á rúmlega 14 lítra af amfetamínbasa og þrír sitja í gæsluvarðhaldi vegna málsins, þar á meðal tveir starfsmenn Eimskips sem hafa ekki áður komið við sögu lögreglu. 16.4.2026 18:32
Vill efla löggæsluna og horfa meira til dróna og gervigreindar Nýr ríkislögreglustjóri segir að efla þurfi löggæsluna á næstu árum og nýta betur tækninýjungar á borð við dróna og gervigreind. Halla Bergþóra Björnsdóttir, sem tekur við embættinu mánudaginn 20. apríl, segir fyrstu vikurnar fara í að hitta fólkið, fara yfir verkefnin og meta hvar þurfi helst að styrkja starfsemina. 16.4.2026 18:24
Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu Samtök verslunar og þjónustu styðja tímabundna lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti en telja að ríkisstjórnin sé um leið að setja upp óþarft eftirlitslag ofan á kerfi sem sé þegar til staðar. Framkvæmdastjóri samtakanna segir þetta bera með sér vantraust á olíufélögin, kasta rýrð á þau að ósekju og opna á verðstýringu sem reynslan sýni að geti farið illa. 15.4.2026 23:31
Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Lögregla hald á um tug lítra af fíkniefnum í vökvaformi um borð í Dettifossi, gámaflutningaskipi Eimskips, á mánudag samkvæmt heimildum fréttastofu. 15.4.2026 18:38