Enginn greindist innanlands og enginn á landamærum Annan daginn í röð greindist enginn með kórónuveiruna innanlands í gær. Enginn greindist heldur á landamærum. 11.2.2021 10:54
Bein útsending: Ráðherra kynnir skýrslu um fæðuöryggi Íslands Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra mun í dag kynna nýja skýrslu Landbúnaðarháskóla Íslands um fæðuöryggi á Íslandi. Hægt verður að fylgjast með fundinum í beinu streymi og hefst hann klukkan 10:15. 11.2.2021 09:56
Þrír ráðnir til Dohop Ingi Fjalar Magnússon, Daði Steinn Brynjarsson og Kristján Þór Jónsson hafa verið ráðnir sem sérfræðingar hjá ferðatæknifyritækinu Dohop. 11.2.2021 09:30
Settir í sex ára bann eftir að hafa þóst sigra Everest Nepölsk yfirvöld hafa bannað tveimur indverskum fjallgöngumönnum og leiðangursstjóra þeirra að stunda fjallamennsku í landinu í sex ár. Ákvörðunin kemur í kjölfar rannsóknar þar sem í ljós kom að þau hafi logið því til að hafa klifið Everest, hæsta fjall heims, árið 2016. 11.2.2021 08:47
Nýju húsi ætlað að hafa sterka skírskotun í yfirbragð gamla hraðfrystihússins Fimm byggingar munu rísa á lóðinni við Kirkjusand 2 í Reykjavík þar sem nú er að finna gamla Íslandsbankahúsið sem senn verður rifið. Arkitektastofan Kurtogpí varð hlutskörpust í samkeppni um nýja byggð á reitnum. 11.2.2021 07:53
Júlía Navalnía sögð hafa flúið land Júlía Navalnía, eiginkona rússneska stjórnarandstæðingsins Alexei Navalní, er sögð hafa flúið land og haldið til Þýskalands. 10.2.2021 14:54
Um fimmti hver Reykvíkingur notar rafhlaupahjól Tæplega nítján prósent Reykvíkinga nota rafhlaupahjól eitthvað og tæp sex prósent nota þau einu sinni í viku eða oftar. Notkunin er mest í aldurshópnum 18 til 24 ára og virkustu notendurnir eru búsettir í Háaleiti/Bústöðum. 10.2.2021 13:57
Einar vill aftur á þing Einar A. Brynjólfsson kennari hyggst gefa kost á sér í prófkjöri Pírata í Norðausturkjördæmi vegna Alþingiskosninganna í haust. Hann sækist eftir að leiða lista flokksins. 10.2.2021 12:14
Háskólanemi situr uppi með einkunnina 0,0 eftir ritstuld Áfrýjunarnefnd í kærumálum háskólanema hefur hafnað kröfu nemenda við Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands um að ógilda ákvörðun deildarforseta um að gefa nemendanum einkunnina 0,0 í námskeiði vegna ritstuldar við ritgerðarsmið. 10.2.2021 11:29
Enginn greindist innanlands í gær Enginn greindist með kórónuveiruna innanlands í gær. Einn greindist með smit á landamærum í gær og greindist sá í seinni landamæraskimun. 10.2.2021 10:45