Fréttamaður

Áróra L Davíðsdóttir

Áróra er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Mikið fylgistreymi milli Mið­flokksins og Sjálf­stæðis­flokksins

Mikil fylgisaukning Sjálfstæðisflokksins stafar líklega af fylgistreymi frá Miðflokknum að sögn stjórmálafræðings. Samanlagt fylgi stjórnarflokkanna annars vegar og stjórnarandstöðu hins vegar hafi haldist heldur stöðugt en miklar hreyfingar séu á fylgi innan stjórnarandstöðunnar. 

Minnst tólf létust í á­rásum Ísraelshers

Minnst tólf létust í þremur árásum Ísraelshers á Gasa í gærnótt og dag, að sögn heilbrigðisyfirvalda á svæðinu. Vopnahlé milli Ísraels og Hamas er enn í gildi en rúmlega þúsund Palestínumenn hafa látist í árásum Ísraelshers frá því það var undirritað í október síðastliðnum. 

Þróunin mælist á­fram hæg en stöðug

Landris og kvikusöfnun við Svartsengi mælast áfram hæg en stöðug. Líklegasta sviðsmyndin er enn sú að kvikuhlaup fari frá Svartsengi yfir í Sundhnjúksgígaröðinasem gæti leitt til eldgoss en jarðskjálftavirkni á svæðinu mælist áfram lítil. 

„Ég er ekki búinn að af­skrifa hana“

Líffræðingur segir Ísland enn frekar fátækt af stunguskordýrum þó nýjar tegundir skordýra séu stöðugt að nema hér land. Unnið er að því að útýma annarri tveggja tegunda moskítóflugu sem fannst hér á landi í fyrra en enn er óljóst hvort það muni ganga upp enda sé lítið vitað um lífsferil flugunnar hér á landi. 

Á­kærður fyrir morðið á Widdecombe

Hinn tuttugu og átta ára Joshua Kerry hefur verið ákærður fyrir morðið á  Ann Widdecombe, fyrrverandi ráðherra og þingmanni Íhaldsflokksins. Kerry var fyrst handtekinn þann 11. júlí í tengslum við málið en fer fyrir Westminster-héraðsdóm í Bretlandi á þriðjudaginn.

Vill leggja fimm­tíu prósenta toll á kanadískar vörur

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur undirritað tilskipun um að leggja fimmtíu prósenta toll á ýmsar innfluttar vörur frá Kanada. Hann sakar Kanada um „ósanngjarna“ verðlagningu bandarískra vara þar í landi. 

„Maður vill trúa kúnnunum sínum“

Leigusali segir farir sínar ekki sléttar af viðskiptum við óprúttið par sem vildi fá gistinótt endurgreidda en reyndist svo hafa notað aðstöðu íbúðarinnar og lagt hana í rúst. Málið sé hrein svik en „leiðinlegast er hvernig er farið með eigur manns.“

Hætta rann­sókn á and­láti á Hraunbúðum

Lögreglan á Suðurlandi hefur hætt rannsókn á andláti konu á tíræðisaldri á hjúkrunarheimilinu Hraunbúðum í Vestmannaeyjum en rannsókn lögreglu hófst í janúar á þessu ári. Krufningarskýrsla hafi leitt í ljós að ekki sé grundvöllur fyrir því að halda rannsókn áfram. 

Þrír hand­teknir vegna slags­mála

Þrír voru handteknir í tengslum við slagsmál í miðborg Reykjavíkur í dag. Málið er í rannsókn en lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um atvikið. 

Sjá meira