

Íþróttafréttamaður
Aron Guðmundsson
Aron er íþróttafréttamaður á fréttastofu Sýnar.
Nýjustu greinar eftir höfund

Framkvæmdir á Laugardalsvelli: Sex vikur frá sáningu í fullkominn völl
Líkt og við sögðum ykkur frá í gær ganga framkvæmdir við Laugardalsvöll vel og stefnt er að því að leika fyrsta leik á honum í júní á næsta ári. Grasvallatæknifræðingur sem er KSÍ innan handar segir það aðeins munu taka um sex vikur frá sáningu vallarins, sem ráðgert er að fari fram í mars, þar til að hann verður leikhæfur.

Laugardalsvöllur eins og þú hefur aldrei séð hann áður
Góður gangur er á framkvæmdum við þjóðarleikvang okkar Íslendinga í fótbolta, Laugardalsvöll. Við litum við og tókum stöðuna á framkvæmdunum í dag og þar tók Ívar Fannar Arnarsson, tökumaður, meðfylgjand myndir.

Láki samdi við strák sem er nú einn heitasti framherji Evrópu
Viktor Gyökeres er eftirsóttasti framherji heims um þessar mundir og Þorláki Árnasyni óraði ekki fyrir því á sínum tíma, þegar að hann samdi við kappann í Svíþjóð, að hann myndi ná svona langt á sínum ferli.

Gagnrýnir Verstappen harðlega og líkir honum við illmenni
Fyrrum heimsmeistari ökuþóra í Formúlu 1, Bretinn Damon Hill, gagnrýnir ríkjandi heimsmeistara, Hollendinginn Max Verstappen harðlega fyrir tilburði hans í Mexíkó kappakstrinum um síðastliðna helgi og líkir honum við illmennið Dick Dastardly út teiknimyndaþáttunum Vaskir vagnar (e.Wacky Races.)

Ákvörðunin hefði verið sú sama ef HK hefði haldið sæti sínu í Bestu deildinni
Ómar Ingi Guðmundsson hefur látið af störfum sem þjálfari HK. Hann telur best núna að annar þjálfari taki við stjórnartaumum liðsins og segir að ákvörðun sín hefði verið sú sama ef HK hefði haldið sæti sínu í Bestu deildinni.

Fótboltamamma Íslands í vanda: „Verð að halda með þeim báðum og hvernig fer ég að því?“
Í kjölfar góðs árangurs á nýafstöðnu tímabili er ljóst að bræðurnir Magnús Már og Anton Ari Einarssynir munu mætast í Bestu deildinni í fótbolta á næsta tímabili. Staða sem setur fjölskyldu þeirra í erfiða stöðu. „Þetta verður mjög skrítið. Ég verð að halda með þeim báðum og hvernig fer ég að því?“ segir Hanna Símonardóttir móðir þeirra.

Búinn að ná öllu út úr ferlinum: „Finn ég er orðinn sáttur“
„Ég hef náð öllu því sem ég vildi úr ferlinum," segir nýkrýndi Íslandsmeistarinn með Breiðabliki, Arnór Sveinn Aðalsteinsson sem hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna og taka við starfi aðstoðarþjálfara hjá Íslandsmeistaraliðinu. Arnór er sáttur í eigin skinni með ákvörðunina og reiðubúinn til þess að gefa allt sem hann á í nýja starfið.

Túfa stýrir Val á næsta tímabili
Engar þjálfarabreytingar munu eiga sér stað hjá karlaliði Vals í fótbolta milli tímabila. Srdjan Tufegdzic, sem tók við þjálfarastöðunni á Hlíðarenda í ágúst fyrr á þessu ári eftir að Arnari Grétarssyni hafði verið sagt upp störfum, verður áfram þjálfari liðsins.

Pétur hafi ekki verið rekinn: „Sameiginleg ákvörðun“
Björn Steinar Jónsson, formaður knattspyrnudeildar Vals, segir það ekki rétt að Pétur Pétursson hafi verið rekinn úr stöðu þjálfara kvennaliðs Vals í fótbolta. Um sameiginlega ákvörðun hafi verið að ræða. Valur hefur nú leit að nýjum þjálfara og vill klára þau mál fljótt.

Ræddi við konuna og fékk bingó: „Tími til að fara aftur til Eyja
Eftir ævintýri í Hong Kong, Portúgal og Svíþjóð er komið að næsta kafla á þjálfaraferli Þorláks Árnasonar sem hefur verið ráðinn þjálfari ÍBV sem leikur í Bestu deildinni á næsta ári. Láki, eins og hann er jafnan kallaður, er spenntur að snúa aftur til Eyja þar sem að hann átti góðar stundir sem krakki. Hann vill að ÍBV liðið sýni hinn sanna anda sem einkennir Eyjamenn.