Fréttamaður

Árni Sæberg

Árni er viðskiptafréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Fundu hníf á vettvangi slagsmála

Í gærkvöldi var lögregla kölluð út vegna slagsmála fyrir utan íbúðahús í miðbænum. Þegar hana bar að garði hafði ástandið róast en lagt var hald á hníf sem fannst á vettvangi. Þetta segir í dagbók lögreglu.

Metpantanir hjá Marel á öðrum ársfjórðungi

Annan ársfjórðung í röð var slegið met í pöntunum hjá Marel en pantanirnar á fjórðunginum voru upp á 370 milljónir evra. „Annar ársfjórðungur var góður fyrir Marel. Okkar metnaðarfulla teymi tókst á við áskoranir með bjartsýni og þrautseigju í nánu samstarfi við birgja og viðskiptavini.“ segir Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Marel, í tilkynningu um ársfjórðungsuppgjör.

Mikil aukning í innbrotum og eignaspjöllum milli mánaða

Hegningarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu voru 955 í júní samkvæmt mánaðarskýrslu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu. Það er fjölgun frá síðasta mánuði. Tilkynningum um innbrot og eignaspjöll hefur fjölgað mikið en ofbeldisbrotum hefur fækkað.

Góður ársfjórðungur hjá Össuri

Hagnaður Össurar á öðrum ársfjórðungi nam 2,4 milljörðum króna eða 10 prósent af veltu. Á sama ársfjórðungi í fyrra var 2,3 milljarða króna tap á rekstri fyrirtækisins. 

Eldur í bifreið

Upp úr klukkan sex í gærkvöldi var tilkynnt um eld í bifreið í Háaleitis- og Bústaðahverfi. Slökkvilið réð niðurlögum eldsins.

Enn hækkar í­búða­verð á höfuð­borgar­svæðinu

Samkvæmt nýbirtum tölum Þjóðskrár Íslands hækkaði íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu að meðaltali um 1,4 prósent milli maí og júní. Árshækkun mælist nú 16 prósent og hefur ekki verið hærri síðan í október 2017. 

Sjá meira