Fréttamaður

Árni Sæberg

Árni er viðskiptafréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Hvítrússneskur spretthlaupari neitar að láta senda sig heim

Krystsina Tsimanouskaya var tekin úr hvítrússneska ólympíuliðinu fyrir að gagnrýna þjálfara sína. Hún hefur óskað eftir aðstoð Alþjóðaólympíunefndarinnar enda segir hún að stjórnvöld séu að neyða hana til að fara til Hvíta-Rússlands.

Kvöldfréttir Stöðvar 2

Að minnsta kosti 83 greindust smitaðir af kórónuveirunnin innanlands í gær þegar færri sýni voru tekin en dagana á undan. Samkomutakmörkunum er mótmælt víða um heim og fóru fjölmenn mótmæli fram í Ísrael í dag. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Rannveig og Þorbergur Ingi sigruðu Súlur Vertical Ultra

Fjallahlaupið Súlur Vertical var haldið við frábærar aðstæður á Akureyri í dag. Gerðar voru töluverðar breytingar á upphaflegum áætlunum og víðtækar ráðstafanir viðhafðar til að fylgja sóttvarnareglum og tryggja öryggi keppenda og starfsfólks.

Lenti lítilli flugvél á bensínstöð

Viðstöddum brá heldur betur í brún í dag þegar lítilli flugvél var lent á plani bensínstöðvar N1 í Árnesi. Upphaflega hélt fólk að um brotlendingu væri að ræða og safnaðist saman á bensínstöðinni.

„Ég er ekkert hrædd við þetta“

„Manni finnst maður mjög öruggur,“ segir heimilismaður á hjúkrunarheimilinu Grund, sem trúir að bóluefnin séu þegar búin að breyta miklu um áhrif veirunnar á daglegt líf. Enginn hefur greinst smitaður af Covid-19 á Grund frá því á þriðjudaginn, þegar starfsmaður og tveir heimilismenn sendu heila deild í sóttkví.

Bob Odenkirk fékk „lítið hjartaáfall“

Leikarinn Bob Odenkirk hné niður við tökur á þættinum Better Call Saul á dögunum. Hann tilkynnti í gær að hann hefði fengið „lítið hjartaáfall“ og að hann væri á batavegi.

Sjá meira