Bein útsending: Blaðamannafundur um húsnæðisstuðning við Grindvíkinga Ríkisstjórnin hefur boðað til blaðamannafundar í Ráðherrabústaðnum klukkan 11:30 í dag. Á fundinum munu Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir fjármála- og efnahagsráðherra ræða húsnæðisstuðning við íbúa Grindavíkur. 24.11.2023 11:08
Bandarískur tilboðsgjafi metur Marel á 363 milljarða króna Marel hefur tilkynnt að John Bean Technologies Corporation (JBT) sé fyrirtækið sem lagði fram óskuldbindandi viljayfirlýsingu, varðandi mögulegt tilboð í öll hlutabréf í Marel. 24.11.2023 10:38
Marel rauk upp áður en lokað var fyrir viðskipti Lokað var fyrir viðskipti með hlutabréf í Marel í morgun. Gengi bréfanna rauk upp um tæplega þrjátíu prósent í fyrstu viðskiptum eftir að tilkynnt var um óskuldbindandi viljayfirlýsingu um kaup á öllu hlutafé félagins. Opnað hefur verið fyrir viðskiptin á ný. 24.11.2023 10:24
Hnífstunguárás í nótt sögð tengjast árásinni á Litla-Hrauni Hnífstunguárás sem framin var í nótt tengist annarri árás á Litla-Hrauni í gær. Þetta herma heimildir Ríkisútvarpsins. Eggvopni var sömuleiðis beitt í árásinni á Litla-Hrauni og sú árás er sögð tengjast skotárásinni í Úlfarsárdal í byrjun mánaðar. 24.11.2023 09:21
Elsta steinhús bæjarins ónýtt Elsta steinhús Grindavíkur er stórskemmt eftir hamfarir síðustu daga. Náttúruhamfaratrygging Íslands hefur beint því til íbúa þess að tæma það alveg. Þrjár fjölskyldur bjuggu í húsinu. 23.11.2023 16:52
Þungt haldinn eftir stunguárás á Litla-Hrauni Lögreglan var kölluð út í fangelsið Litla-Hrauni vegna atviks sem þar átti sér stað í dag um tvöleytið. Einn var fluttur á sjúkrahús eftir líkamsárás. Samkvæmt heimildum Vísis var eggvopni beitt og sá sem fyrir árásinni varð er þungt haldinn. Lögregla segir rannsókn á árásinni á frumstigi. 23.11.2023 14:58
Ótrúleg björgun af brennandi þaki Myndskeið sýnir ótrúlega björgun manns af brennandi húsþaki í Reading á Englandi í dag. Viðbragðsaðilar slökuðu búri til mannsins með krana og hífðu hann svo á brott. 23.11.2023 14:51
„Maður vill ekkert meira en að búa áfram á þessu heimili“ Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, er einn fjölmargra Grindvíkinga sem fengu að fara heim til sín í dag að sækja verðmæti. Fulltrúar fréttastofu fengu að líta við hjá honum og sjá skemmdirnar. 23.11.2023 14:22
Hafi keypt vín fyrir andlega fatlaðan alkóhólista og heimtað kynlíf Landsréttur hefur fallist á kröfu Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra um heimild til að taka strokusýni úr munni manns, sem grunaður er um kynferðisbrot. Hann er sagður hafa keypt áfengi fyrir andlega fatlaða konu, sem er alkóhólisti í þokkabót, og viljað fá borgað með kynlífi. 23.11.2023 11:56
Fá ekki óheftan aðgang en hafa náð að bjarga nánast öllu Forstjóri Orf líftækni segir að rýmri opnun til Grindavíkur gildi ekki fyrir fyrirtækið, sem er nokkuð utan bæjarins. Fólk á vegum fyrirtækisins hafi þó fengið að fara á svæðið þrisvar í fylgd viðbragðsaðila og búið sé að bjarga nánast öllu því sem bjargað verður. 23.11.2023 11:19