Herjaði á Krónuna og fékk fimm mánuði Karlmaður hefur verið dæmdur til fimm mánaða óskilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir fjölda þjófnaðarbrota. Hann virðist hafa haft dálæti á Krónunni þar sem hann stal vörum fyrir ríflega 300 þúsund krónur. 19.2.2024 20:55
„Við náttúrulega hvorki pissum né kúkum“ Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs Grindavíkurbæjar segir að byrjað verið að hleypa köldu vatni á bæinn í áföngum á miðvikudag. Hann segir mikilvægt að vandað verði til verka til þess að koma í veg fyrir tjón á mannvirkjum. 19.2.2024 19:27
Bandaríkjamenn leggja til að öryggisráðið krefjist vopnahlés Fulltrúar Bandaríkjanna í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna hafa samið tillögu að ályktun öryggisráðsins þar sem stuðningi við tímabundið vopnahlé fyrir botni Miðjarðarhafs er lýst yfir. 19.2.2024 18:50
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Grindvíkingar mega frá og með morgundeginum dvelja allan sólarhringinn í bænum en verða þar á eigin ábyrgð. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður rætt við formann bæjarráðs um þessa breytingu, við verðum í beinni frá íbúafundi og heyrum í Magnúsi Tuma Guðmundssyni um mögulegar hættur í Grindavík. 19.2.2024 18:00
Dæmdur í fangelsi en finnst ekki Karlmaður á þrítugsaldri hefur verið dæmdur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás og rán, með því að kýla mann á sextugsaldri í andlitið og ræna af honum síma og bíllyklum í félagi við annan mann. Í dómi Héraðsdóms Vesturlands segir að óvíst sé um dvalarstað mannsins og ekki hafi tekist að birta honum fyrirkall. 19.2.2024 17:51
Hundruð milljóna króna skattasekt staðfest Landsréttur hefur sakfellt karlmann á sextugsaldri fyrir skattalagabrot. Hann var dæmdur í 18 mánaða skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu 268 milljóna króna í sekt. Ákæruvaldið féllst á það undir rekstri málsins að tiltekin útgjöld hafi talist rekstrarkostnaður og sekt mannsins var lækkuð um 55 milljónir króna, frá því sem hafði verið dæmt í héraði. 16.2.2024 15:35
Mátti kenna Leoncie við nektardans Landsréttur hefur staðfest sýknu Helga Jónssonar, eiganda og umsjónarmanns Glatkistunnar, af öllum kröfum tónlistarkonunnar Leoncie. Hún höfðaði meiðyrðamál á hendur Helga vegna lýsinga hans á ferli hennar sem tónlistarkonu og nektardansmær. 16.2.2024 15:27
Skilaði Bítlabassa sem er metinn á tæpa tvo milljarða króna Paul McCartney hefur endurheimt bassa sem var stolið árið 1972. McCartney keypti bassann í Hamborg í Þýskalandi, þegar Bítlarnir voru að stíga sín fyrstu skref, á þrjátíu pund. Talið er að bassinn sé allt að tíu milljóna punda virði í dag, jafnvirði um 1,75 milljarða króna. 16.2.2024 13:33
Báðir særðir eftir hnífstunguárás Karlmaður er í haldi lögreglu, grunaður um að hafa framið hnífstunguárás í Fossvogi í gær. Hann var fluttur á sjúkrahús ásamt þeim sem hann réðst á en áverkar þeirra voru óverulegir. 16.2.2024 11:15
Landsréttur fimm ára: „Enginn vafi á því að þetta voru gríðarlegar réttarumbætur“ Landsréttur hefur nú starfað í fimm ár og Hæstiréttur þar með starfað með gjörbreyttu sniði í sama tíma. Forseti Hæstaréttar segir breytinguna á réttarkerfinu hafa verið mikla réttarbót. 16.2.2024 10:17