Skildu fullar körfur eftir vegna bilunar Fjöldi viðskiptavina Bónuss hefur lent í því í morgun að geta ekki greitt með greiðslukorti vegna bilunar í færsluhirðingu hjá Verifone. Ekki liggur fyrir hvort bilunar hafi orðið vart víðar. 12.9.2024 12:22
Verðbólga fari undir fimm prósent í lok árs Hagfræðideild Landsbankans spáir því að vísitala neysluverðs hækki um 0,08 prósent á milli mánaða í september og að verðbólga minnki úr 6,0 prósent niður í 5,7 prósent. Deildin á von á áframhaldandi lækkun næstu mánuði og að ársverðbólga verði komin niður í 4,9 prósent í lok árs. Íslandsbanki spáir örlítið meiri verðbólgu í lok árs. 12.9.2024 10:47
Hagkaup hefur áfengissölu í dag Í dag opnar ný vefverslun með áfengi á léninu veigar.eu, í samstarfi Haga Wine og Hagkaups. Viðskiptavinum gefst nú tækifæri til að kaupa áfengi á netinu og sækja í Skeifuna um leið og þeir kaupa aðrar vörur til heimilisins. 12.9.2024 09:54
Albert mættur í dómsal Knattspyrnumaðurinn Albert Guðmundsson er mættur í Héraðsdóm Reykjavíkur, þar sem aðalmeðferð í máli hans fer fram í dag og á morgun. Hann sætir ákæru fyrir nauðgun. 12.9.2024 09:30
Með ólíkindum og merki um taumlausa græðgi Vilhjálmur Birgisson segir ákvörðun Arion banka um að hækka vexti á verðtryggðum lánum með ólíkindum og merki um taumlausa græðgi, sem hann segir hafa fengið að viðgangast á íslenskum fjármálamarkaði um árabil. 11.9.2024 16:39
Framkvæmdaleyfi að hluta í höfn fyrir lundinn umdeilda Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti samhljóða á fundi sínum í dag að veita Landsvirkjun leyfi til framkvæmda vegna vindorkuversins Búrfellslundar við Vaðöldu. 11.9.2024 15:50
Ráðstöfun séreignarsparnaðar úr sögunni: „Ég skora á stjórnvöld að framlengja þetta ákvæði“ Formaður Starfsgreinasambandsins er forviða yfir ákvörðun stjórnvalda um að framlengja ekki heimild til ráðstöfunar séreignarsparnað inn á húsnæðislán. Hann spyr sig hvort úrræðið hafi gagnast millitekjufóki of vel að mati stjórnvalda, enda sé innborgun inn á höfuðstól það besta sem komi fyrir fólk. 11.9.2024 15:14
Þungur róður hjá Samstöðinni Fjölmiðillinn Samstöðin tapaði 24 milljónum króna á síðasta ári. Rekstrargjöld stöðvarinnar voru ríflega þrefalt hærri en tekjurnar. 11.9.2024 13:59
Fengu milljarði meira en bróðirinn en þurfa ekki að endurgreiða Fjögur systkini þurfa ekki að endurgreiða dánarbúi móður sinnar um 200 milljónir króna sem börn látins bróður þeirra kröfðust. Systkinin fengu samanlagt um einum milljarði króna meira í fyrirframgreiddan arf en bróðirinn. 11.9.2024 12:06
Arion banki hækkar vexti hressilega Útlánavextir Arion banka hækka talsvert frá og með deginum í dag. Hinir stóru viðskiptabankarnir tveir hafa ekki tilkynnt vaxtahækkun. 11.9.2024 10:19