Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Fulltrúar rússneskra stjórnvalda segjast ekki hafa neinn áhuga á því að hafa áhrif á þjóðaratkvæðagreiðsluna á Íslandi 29. ágúst um það hvort hefja eigi á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Rússar hafa ítrekað verið sakaðir um að reyna að hafa áhrif á kosningar og atkvæðagreiðslur í Evrópu, meðal annars í Brexit-atkvæðagreiðslunni 2016. 19.8.2026 01:01
Virtist taugaóstyrkur og brast í grát „Hann var mjög taugaóstyrkur,“ segir Silja Rún Sigurbjörnsdóttir fréttamaður er hún lýsir fasi Sigurðar Gunnars Ásgeirssonar fyrir Héraðsdómi Suðurlands í dag en hann er meðal sakborninga í Reykholtsmálinu. Á einum tímapunkti hafi hann brostið í grát þegar hann talaði um eiginkonu sína. 18.8.2026 22:31
„Salami-aðferðin“ geri það erfitt að hætta við Málskotsréttur forseta hverfur ekki þó að Ísland myndi ganga inn í ESB en verður þó takmarkaður, að sögn Birgis Ármannssonar fyrrverandi þingforseta. „Salami-aðferð“ Evrópusambandsins í viðræðum gæti að hans mati gert Íslendingum erfiðara fyrir ef þeir vilja hætta við hugsanlega aðildarumsókn. „Flest mannanna verk eru nú þannig að það er hægt að snúa þeim við,“ segir hann samt. 18.8.2026 19:56
Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ „Ef þessir háu herrar í svörtuloftum ætla að fara að botnfrysta markaðinn og þar með framleiðslu íbúðarhúsnæðis, þá vitum við hvernig þetta endar,“ segir Vignir S. Halldórsson verktaki sem óttast að peningastefnunefnd Seðlabankans hækki vexti á morgun. „Þá springur allt í loft upp aftur og tugprósenta hækkun á íbúðaverði verður til.“ 18.8.2026 19:38
Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Rússar hafa á undanförnum árum komið upp herstöðvum víða í vesturhluta landsins. Þaðan eru þeir taldir geta skotið öflugum drónum langt inn á landsvæði ríkja Atlantshafsbandalagsins. 17.8.2026 23:47
Haraldur konungur lagður inn á spítala Haraldur Noregskonungur verður lagður inn á sjúkrahús í tvær vikur. Krónprinsinn Hákon er því ríkisstjóri í fjarveru föður síns. 17.8.2026 22:38
Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Yfirmaður herafla Bandaríkjanna í Evrópu, sem er sömuleiðis yfirherforingi NATO, segir það jákvætt að ummæli Donalds Trump Bandaríkjaforseta um Grænland hafi ýtt undir umræðu um mikilvægi varnarmála á Norðurslóðum. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra tekur heils hugar undir. 17.8.2026 21:55
Ástandið minni á 2007 Hagfræðingurinn Már Wolfgang Mixa segir raunstýrivexti ekki hafa verið hærri síðan rétt fyrir bankahrun. Verktakar gætu neyðst til að gefa verulega afslætti til þess að losa sig við nýjar íbúðir, sem hrannist upp. Már telur „galið“ að eltast við 2,5 prósenta verðbólguviðmið Seðlabankans. Ríkið ætti að taka virkari þátt í að viðhalda efnahagslegum stöðugleika. 17.8.2026 20:49
Skoða hvort gerviaðgangar og grunsamlegar síður séu erlend öfl í dulbúningi Greiningardeild ríkislögreglustjóra fylgist grannt með gerviaðgöngum á samfélagsmiðlum og grunsamlegum vefsíðum og athuga hvort erlendir aðilar sigli þar undir fölsku flaggi til að að ýta niðurstöðu atkvæðagreiðslunnar um ESB í aðra hvora áttina. 16.8.2026 14:01
Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Framkvæmdastjóri Krónunnar segir margt við nýja umbúðareglugerð Evrópusambandsins ekki henta íslenskum markaði. Verslunin hafi lengi reynt að nýta svokallaðar áfyllingarlausnir en neytendur ekki tekið vel í þær. Hún vonar að lausn finnist fyrir Íslendinga ef EFTA-ríkin innleiða reglugerðina. 15.8.2026 15:32
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent