„Dökk að utan en mjólkurhvít að innan“ Ung íslensk kona af tógóskum uppruna telur almenning ekki átta sig á þeim fordómum sem hörundsdökkt fólk upplifir á Íslandi. Jafnvel þó hún hafi alltaf upplifað sig sem Íslending segist hún stöðugt vera minnt á hvað hún sé „öðruvísi“. 30.8.2025 22:56
Þjóðin sé orðin þreytt á málþófi Sjálfstæðisflokkurinn skipti um þingflokksformann í dag. Formaður flokksins segir breytinguna ekki tengjast ólíkum fylkingum innan flokksins. Nýi þingflokksformaðurinn telur að þjóðin sé orðin þreytt á málþófi. 30.8.2025 21:28
Tókst ekki að flýja lögreglu og var gómaður með þrjá hnífa og meint eiturlyf Lögregla hafði í dag afskipti af manni sem var að munda hnífa í miðborginni. Honum tókst ekki að flýja lögregluna. 30.8.2025 20:54
Björguðu ketti sem var fastur inni í Teslu Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst í dag tilkynning um kött sem var fastur inni í bíl á Seltjarnarnesi. Lögregla gaf kettinum harðfisk til að róa hann niður svo auðveldara væri að fjarlægja hann úr bifreiðinni. 30.8.2025 18:26
Lýst eftir Ólafi í Búlgaríu Lögreglan í Búlgaríu leitar að Ólafi Austmann Þorbjörnssyni sem sást síðast fyrir tæplega tveimur vikum. Aðstandendur hafa ekki heyrt frá honum síðan 18. ágúst og systir hans biðlar til fólks að hafa samband ef það veit meira. 30.8.2025 17:49
Guðrún tilnefnir Ólaf Adolfsson sem formann þingflokksins Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, mun tilnefna Ólaf Adolfsson sem þingflokksformann. Þetta herma heimildir fréttastofu en Ólafur mun þá taka við af Hildi Sverrisdóttur. Hann er dyggur stuðningsmaður Guðrúnar og góður vinur Guðlaugs Þórs Þórðarsonar. 30.8.2025 06:18
Þyrla ræst úr og ríflega hundrað björgunarsveitarmenn: Leita að týndum tólf ára dreng við Ölfusborgir Um 150 björgunarsveitarmenn leita tólf ára pilts sem týndist í Ölfusborgum síðdegis í dag. Drengurinn er erlendur ferðamaður og því ekki kunnugur staðháttum. 29.8.2025 23:30
Guðrún hrókerar í þingflokknum Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, mun á morgun tilnefna nýjan þingflokksformann Sjálfstæðisflokksins. Sá mun taka við af Hildi Sverrisdóttur, sem sagði af sér í dag til að forða flokknum frá innri átökum, að eigin sögn. 29.8.2025 22:15
Leita að týndum tólf ára dreng í Ölfusborgum Um sextíu manns leita tólf ára drengs sem týndist í Ölfusborgum eða nágrenni milli Hveragerðis og Selfoss. Drengurinn er erlendur ferðamaður og því ekki kunnugur staðháttum. 29.8.2025 21:05
Hildur segir af sér til að forðast átök Hildur Sverrisdóttir hefur sagt af sér sem þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins. Segist hún gera þetta til að forðast átök, þar sem formaður Sjálfstæðisflokksins muni tilnefna annan þingmann sem formann þingflokks. Hildur heldur samt áfram sem þingmaður flokksins. 29.8.2025 20:12