Frítt í sund og Fjölskyldu- og húsdýragarðinn á sumardaginn fyrsta Víkingar verða með sumarhátíð í Bústaðahverfi, þar verður boðið upp á heitar pylsur, farið í skrúðgöngu, skemmtidagskrá í Bústaðakirkju og hopp og hí í félagsheimilinu Víkinni. 24.4.2019 13:55
200 milljóna króna gjaldþrot byggingaverktaka Skiptum í þrotabú byggingaverktakans Nova Buildings ehf lauk þann 16. apríl. Lýstum kröfum í búið námu 195 milljónum króna samanlagt en 97 milljónir króna voru samþykktar við skiptameðferðina. 24.4.2019 11:22
Verð á olíu komið yfir 70 Bandaríkjadali Heimsmarkaðsverð á olíu hefur hækkað um nálægt 34 prósent það sem af er ári eftir verulega lækkun undir lok síðasta árs. 24.4.2019 10:47
Jónína Ben og Gunnar í sundur Jónína Benediktsdóttir og Gunnar Þorsteinsson, yfirleitt kenndur við Krossinn, eru skilin að borði og sæng. 23.4.2019 17:03
Eyjamenn vonsviknir og saka Björgun um svik Bæjarráð Vestmannaeyja lýsir vonbrigðum með að sá tími sem gafst til dýpkunar um páskana hafi ekki verið nýttur sem skyldi. Telur bæjarráð það tvímælalaust vanefndir á samningi milli aðila um dýpkun hafnarinnar. 23.4.2019 16:28
Embætti landlæknis flýr mygluna og flytur á Rauðarárstíg Landlæknisembættið flytur frá Heilsuverndarstöðinni á Barónstíg á Rauðarárstíg 10 í næstu viku vegna mygluvanda. 23.4.2019 16:05
Stefán tímabundið bankastjóri hjá Arion banka Stefán Pétursson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Arion banka, tekur tímabundið við starfi bankastjóra frá 1. maí og þar til stjórn bankans hefur ráðið nýjan bankastjóra til frambúðar. 23.4.2019 15:47
Fengu uppsagnarbréf með páskaegginu frá Bernhard Meirihluta starfsmanna Bernhard ehf. var sagt upp í liðinni viku í tengslum við kaup Öskju á þeim hluta reksturs Bernhard sem fer með Honda umboðið á Íslandi. 23.4.2019 15:25
Ætlar að auka fagmennskuna í vallarmálum KR-inga Magnús Valur Böðvarsson hefur verið ráðinn vallastjóri hjá knattspyrnudeild KR. Þetta var tilkynnt á Twitter í gær þar sem Sveinbjörn Þorsteinsson, verkefnastjóri hjá KR, handsalaði komu Magnúsar í Vesturbæinn. 23.4.2019 14:12
Ingibjörg að verða stærsti hluthafinn í Skeljungi Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir hefur tryggt sér rúmlega tíu prósenta hlut í Skeljungi í gegnum félag sitt 365 miðla sem rekur Fréttablaðið í gegnum útgáfufélag sitt Torg. 23.4.2019 13:25