Segist samviskusamlega hafa tilkynnt um andlát föður síns Kona um sextugt sætir ákæru héraðssaksóknara fyrir fjárdrátt með því að hafa dregið sér fjármuni af bankareinkningi dánarbús föður hennar. Það á hún að hafa gert með fimm millifærslum sem námu samtals 2,2 milljónum króna. 13.9.2019 12:51
Borgarstjóri leggur blessun sína yfir 1,4 milljarð til Sorpu Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í Reykjavíkr, lagði tillögu um viðauka við fjárhagsáætlun vegna Sorpu fyrir árið 2019 á fundi borgarráðs í gær. Var ákveðið að vísa tillögunni áfram til borgarstjórnar. 13.9.2019 12:34
Sakaður um árás á mann að næturlagi fyrir utan Hressó Héraðssaksóknari hefur ákært 23 ára karlmann fyrir sérstaka hættulega líkamsárás aðfaranótt sunnudagsins 5. júní árið 2016. 13.9.2019 11:49
Ákærð fyrir árás með Dobermann hund í Grafarholti Héraðssaksóknari hefur höfðað mál á hendur 26 ára konu fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás í Grafarholti í júní 2017. 13.9.2019 10:33
Blöskrar 45 prósenta hækkun hjá þeim sem minna mega sín á Seltjarnarnesi Formaður Landsamtakanna Þroskahjálp segir ólíðandi vinnubrögð hjá Seltjarnarnesbæ að reyna að rétta af halla bæjarins með því að hækka íbúðaleigu þeirra sem standi höllum fæti í samfélaginu. 12.9.2019 16:38
Andrés Ingi leggur fram frumvarp um snöggskilnað Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Vinstri grænna í Reykjavíkurkjördæmi norður, ætlar að gera hjónum kleyft að krefjast strax lögskilnaðar. 12.9.2019 16:13
Gísli pólfari kaupir Vigur á hundruð milljóna króna Gísli Jónsson, bílstjóri hjá Arctic Trucks og stundum nefndur pólfari eftir ferðalög sín á Suðurskautslandið, hefur fengið tilboð samþykkt í eyjuna Vigur í Ísafjarðardjúpi. 12.9.2019 14:15
Krefjast lögbanns á smálánafyrirtæki Gísla Neytendasamtökin hafa krafist þess að sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu leggi lögbann við því að Almenn innheimta ehf. og Gísli Kr. Björnsson innheimti kröfur vegna ólögmætra smálána. 12.9.2019 13:28
Fleiri kveðja Arion banka Rakel Óttarsdóttir, framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs Arion banka, hefur óskað eftir að láta af störfum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Arion banka. 12.9.2019 11:22
Uppnám í Garðabæ eftir að börn grýttu önd til dauða Hanna Arnórsdóttir, dýralæknir á Dýraspítalanum í Garðabæ, segir að rétt fyrir lokun spítalans í gær hafi verið komið með fugl sem hafði verið grýttur svo til til dauða. 12.9.2019 00:08