Læknaráð átelur Landspítalann fyrir litlar kröfur Stjórn læknaráðs Landspítala telur afleitt að ekki hafi verið gerð skýr krafa um fagmenntun og reynslu lykilstjórnenda þegar störf forstöðumanna á Landspítalanum voru auglýst nýverið. 29.10.2019 10:31
Sveik tuttugu og tvo Íslendinga á skömmum tíma á sölusíðum á Facebook Jón Birkir Jónsson, karlmaður á fertugsaldri búsettur á Akureyri, hefur verið dæmdur í átján mánaða fangelsi fyrir alls tuttugu og tvö fjársvikabrot sem hann framdi á netinu. 29.10.2019 08:30
Milljónir streymdu inn á bankareikning grunaðra kókaínsmyglara Tveir 23 ára karlmenn og einn nýskriðinn yfir tvítugt hafa verið ákærðir af héraðssaksóknara fyrir peningaþvætti í tengslum við innflutning á sextán kílóum af kókaíni í maí síðastliðnum. 29.10.2019 08:00
Skilur ekki hvernig Íslandsbanki geti verið hreyfiafl til góðra verka í jafnréttismálum Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi Sósíalistaflokksins, segist ekki skilja hvernig orðið banki og jafnrétti geti átt heima í sömu setningu. 28.10.2019 16:23
Sendi nemendum sínum skilaboðin: „Drullist til að lesa áðurnefnt, helvítis hálfvitarnir ykkar“ Fyrrverandi kennari við Kvennaskólann í Reykjavík hefur tapað máli sem hann höfðaði á hendur Hjalta Jóni Sveinssyni, skólastjóra Kvennaskólans. 28.10.2019 15:15
Lykilatriði að stefna Íslandsbanka hreyfi ekki við ritstjórnarlegu sjálfstæði Lilja Dögg Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra segir að tryggt þurfi að vera að stefna Íslandsbanka að auglýsa ekki hjá fjölmiðlum með afgerandi kynjahalla hafi ekki áhrif á ritstjórnarlegt frelsi fjölmiðla. 28.10.2019 09:12
Sökuð um að hafa gengið í skrokk á móður meðan þrjú börn hennar horfðu á Karl og kona hafa verið ákærð fyrir ofbeldisbrot og brot gegn barnaverndarlögum gagnvart barnsmóður karlsins. Barnsmóðirin mátti þola spörk í höfuð þar sem hún lá liggjandi á jörðinni en þrjú börn hennar og sambýlismaður horfðu á 28.10.2019 09:00
Kvenréttindafélagið fagnar framtaki Íslandsbanka Kvenréttindafélag Íslands segist fagna framtaki Íslandsbanka að að færa viðskipti sín til þeirra fjölmiðla og fyrirtækja sem búi ekki við afgerandi kynjahalla. Þetta kemur fram í ályktun félagsins. 25.10.2019 14:30
Veðrið á Vatnajökli setti strik í reikninginn hjá George Clooney Vinna við tökur á nýrri mynd George Clooney á Skálafellsjökli lá niðri í gær vegna veðurs. Til stendur að halda tökum áfram í dag. Spenna er á Höfn í Hornafirði en áttatíu íbúar á svæðinu eru að gera sig klára í tökur á myndinni uppi á jökli í næstu viku. 25.10.2019 14:00
Alvarlega slösuð eftir eldsvoða í Mávahlíð Tvennt er alvarlega slasað eftir eldsvoða sem kom upp í kjallaraíbúð í Mávahlíð að morgni miðvikudags. 25.10.2019 12:00