Akureyringar eiga von á Kóróna-skilaboðum ætluðum flugfarþegum Óhjákvæmilega munu skilaboð frá Almannavörnum ætluð farþegum sem koma með flugi frá útlöndum til Akureyrar á morgun rata til íbúa á Akureyri. 20.2.2020 14:05
„Ég er örugglega frekur karl“ Daníel Jakobsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins á Ísafirði, segir að eftirsjá verði af Guðmundi Gunnarssyni, fyrrverandi bæjarstjóra, og fjölskyldu hans á Ísafirði. Vilji fólk hins vegar ekki búa á svæðinu þá eigi það að fara í friði. 20.2.2020 12:23
Upplifa fantabrögð og flýja Ísafjörð Guðmundur Gunnarsson, fyrrvernadi bæjarstjóri á Ísafirði sem lét af störfum í janúar, segir ekkert annað í stöðunni fyrir sig og fjölskyldu sína en að flytja úr bænum. Þetta segir hann í færslu á Facebook sem sjá má að neðan. 20.2.2020 11:47
Arion banki krefur birgja um aðgerðir í loftslagsmálum Bankastjóri Arion banka segir það stefnu bankans að krefja birgja um að taka mið af umhverfis- og loftslagsáhrifum í sinni starfsemi. Þetta kemur fram í ávarpi Benedikts Gíslasonar bankastjóra í ársskýrslu bankans. 20.2.2020 11:45
Bergsveinn og Fríða tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs Rithöfundarnir Bergsveinn Birgisson og Fríða Ísberg hafa verið tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Þetta var tilkynnt á fundi í Gunnarshúsi klukkan ellefu. 20.2.2020 11:12
Mótmælum Eflingar á jafnréttisþingi fagnað Um fimmtíu manns á vegum Eflingar, með Sólveigu Önnu Jónsdóttur formann í broddi fylkingar, mættu við Jafnréttisþingið í Hörpu klukkan tíu til að mótamæla því sem þau kalla "virðingarleysi samfélagsins gagnvart umönnunarstörfum“. 20.2.2020 10:20
Fjögurra daga helgi hjá nemendum Réttarholtsskóla vegna verkfalls 400 nemendur í Réttarholtsskóla geta ekki sótt skóla á morgun og föstudag vegna verkfalls starfsmanna Reykjavíkurborgar sem eru í Eflingu. 19.2.2020 16:28
Íslenskir þingmenn hentu í víkingaklapp á Nýja-Sjálandi Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis, Helgi Hrafn Gunnarsson, 6. varaforseti Alþingis, Hanna Katrín Friðriksson, formaður þingflokks Viðreisnar og Jörundur Kristjánsson, forstöðumaður forsetaskrifstofu buðu upp á víkingaklapp að hætti stuðningsmanna knattspyrnulandsliða Íslands í opinberri heimsókn forseta Alþingis til Nýja-Sjálands. 19.2.2020 15:52
Segja foreldra Maní hafa afþakkað að viðtal væri tekið við drenginn Útlendingastofnun segir að framburður foreldra hafi legið til grundvallar ákvörðun stofnunarinnar í máli hins íranska Manís sem hafnað hefur verið um alþjóðlega vernd hér á landi. Foreldrar hans hafi afþakkað boð Útlendingastofnunar um að viðtal væri tekið við barnið. 19.2.2020 14:09
Björgólfur kveður Samherja Björgólfur Jóhannsson, starfandi forstjóri Samherja, ætlar að stíga úr brúnni fyrir lok mars. Björgólfur býður fram krafta sína í aðalstjórn Sjóvá en það kemur fram í skýrslu tilnefningarnefndar Sjóvá sem birt var á heimasíðu tryggingafélagsins í dag. 19.2.2020 12:45