Tuttugu milljónir í að hækka varnargarðana Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun að verja allt að 20 milljónum króna til þess að hækka varnargarða fyrir ofan Nátthaga. Nú þegar hafa verið reistir tveir fjögurra metra háir varnargarðar og verða þeir hækkaðir í allt að átta metra. 18.5.2021 11:17
Bein útsending: Blaðamannafundur Blinkens og Guðlaugs Þórs Antony Blinken utanríkisráðherra Bandaríkjanna og Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra Íslands verða með sameiginlegan blaðamannafund í Hörpu klukkan 11:20. Fundurinn verður í beinni útsendingu og textalýsingu á Vísi. 18.5.2021 10:41
Sannleikurinn um íslenska ferðamenn sem enginn þori að segja upphátt Egill Páll Egilsson, Húsvíkingur og blaðamaður á Vikublaðinu, telur starfsfólk í ferðamennsku margt hvert óttast annað íslenskt ferðasumar. Stór hluti Íslendinga gleymi nefnilega öllum mannasiðum um leið og það setur niður í ferðatösku. 17.5.2021 22:00
Ertu í ofbeldisfullu sambandi? Taktu prófið Árleg forvarnarherferð Stígamóta – SJÚKÁST – um ofbeldi í nánum samböndum ungmenna er komin í loftið. Hluti af herferðinni er svokallað sambandspróf þar sem fólk fær svör við spurningum um hvort hlutir sem komi upp í samböndum séu heilbrigðir eða ekki og í versta falli ofbeldi. 17.5.2021 11:51
Kýldi konu algjörlega að tilefnislausu í Hveragerði Tæplega þrítugur karlmaður hefur verið dæmdur í sextíu daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa kýlt konu að tilefnislausu í Hveragerði í desember 2019. Þá þarf hann að greiða henni 300 þúsund krónur í bætur. 17.5.2021 10:57
Skárri kostur en að rústa lífi manns með fangelsisdómi Eiríkur Tómasson fyrrverandi Hæstaréttardómari segir skárra að sekir menn sleppi við fangelsisvist en að saklaus maður endi bak við lás og slá. Dómarar eigi að hafa sannleiksreglu að leiðarljósi í því skyni að rétt sé dæmt í málum sem rati fyrir dóminn. 17.5.2021 06:00
Eurovision staðreyndir sem skipta öllu og engu máli Laugardagskvöldið 22. maí verður krýndur nýr sigurvegari í Eurovision. Framlag Íslands er meðal þeirra sigurstranglegustu ef marka má veðbanka. Hvað nú verður, veit nú enginn, vandi er um slíkt að spá. 16.5.2021 22:00
Viðskiptabann við Ísrael ekki á teikniborðinu Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra lítur svo á að Ísland geri það sem það geti í átökum Ísraels og Palestínu. Viðskiptabann sé ekki það fyrsta sem komi upp í hugann sem viðbrögð frá 370 þúsund manna þjóð. 16.5.2021 18:00
Láta reyna á fjórða hnéð og halda á topp Everest Klukkan 19:15 að íslenskum tíma leggja fjallgöngukapparnir Heimir Fannar Hallgrímsson og Sigurður Bjarni Sveinsson af stað úr grunnbúðum Mount Everest. Stefnan er sett á tindinn þótt óvissa sé um ástandið á einu hnéi af fjórum. 16.5.2021 16:46
Við hestaheilsu og vonast til að geta stigið á svið Daði Freyr og félagar hans í Gagnamagninu eru á leið á hótel íslenska hópsins í Rotterdam í Hollandi eftir að hafa farið í sýnatöku vegna Covid-19. Einstaklingur í íslenska teyminu greindist með Covid-19 í dag og var hópurinn af þeim sökum allur sendur rakleiðis í sýnatöku. 16.5.2021 16:26