Klara Bjartmarz farin í leyfi Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri Knattspyrnusambands Íslands, er farin í leyfi frá störfum. Þetta staðfestir Óskar Örn Guðbrandsson á samskiptadeild KSÍ í samtali við fréttastofu. Hann vísaði á fulltrúa stjórnar varðandi nánari upplýsingar. 1.9.2021 12:53
Frosti nýr framkvæmdastjóri Olís Frosti Ólafsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Olíuverzlunar Íslands ehf. og mun hefja störf föstudaginn 3. september. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Högum. 31.8.2021 16:33
Hafa hjálpað 33 að komast frá Afganistan til Íslands 33 einstaklingar hafa undanfarna daga notið aðstoðar borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins við að komast frá Afganistan hingað til lands. Íslensk stjórnvöld taka undir áskorun fjölmargra ríkja til nýrra valdahafa í Afganistan um að heimila fólki frjálsa för úr landi. Þetta kemur fram á vef utanríkisráðuneytisins. 31.8.2021 16:18
Bjarni, Gunnar Smári og Kristrún mættust í Kosningapallborðinu Innan við fjórar vikur eru til Alþingiskosninga og í dag fer Kosningapallborðið á Vísi í loftið. Fulltrúar allra flokka sem mælst hafa með meira en 4% fylgi undanfarnar vikur koma í settið og takast um á mál sem brenna á fólki í aðdraganda kosninga. 31.8.2021 11:56
Engin formleg tillaga um aukaþing borin upp á fundi stjórnar Stjórn KSÍ ætlar að sitja fram að næsta ársþingi sem fram fer í febrúar. Þó var rætt á fundi stjórnarinnar um helgina að boða til aukaþings þar sem kosin yrði ný stjórn. Þetta herma heimildir fréttastofu. 30.8.2021 08:59
Tveir leikmenn munu ekki spila gegn Rúmeníu Tveir leikmenn sem valdir voru í landsliðshópinn fyrir komandi landsleiki í undankeppni HM 2022 í fótbolta verða ekki með í næsta verkefni. Annar hefur verið tekinn úr hópnum en hinn mun hafa dregið sig sjálfur úr hópnum. 29.8.2021 18:32
Stjórn KSÍ lofar bót og betrun en situr áfram Stjórn Knattspyrnusambands Íslands hefur sent frá sér yfirlýsingu í framhaldi af því að Guðni Bergsson, formaður KSÍ, ákvað að stíga til hliðar. 29.8.2021 18:06
Guðni Bergsson segir af sér Guðni Bergsson hefur sagt starfi sínu sem formaður KSÍ lausu. Hann var kosinn formaður fyrst árið 2017. 29.8.2021 16:52
Hetjur innan vallar en víða pottur brotinn utan vallar Þeir sameinuðu íslensku þjóðina með góðu gengi sem náði hápunkti á Evrópumótinu í Frakklandi 2016 og vöktu athygli um allan heim fyrir árangur sinn. Á þeim fimm árum sem hafa síðan liðið hefur hver hrollvekjusagan af landsliðsmönnum Íslands í knattspyrnu farið sem eldur í sinu um samfélagið, ýmist í formi óstaðfestra eða staðfestra sagna. 28.8.2021 15:39
Líðan skotmannsins stöðug eftir aðgerð Karlmaður á fimmtugsaldri sem skotinn var af lögreglu á Egilsstöðum í gærkvöldi liggur á gjörgæsludeild Landspítalans. Líðan hans er stöðug en hann gekkst undir aðgerð í nótt eftir að hafa verið skotinn í kviðinn. 27.8.2021 17:49