Stuðlar orðnir að gæsluvarðhaldsfangelsi fyrir börn Dómsmálaráðherra segir brýnt að bregðast við stöðu sem upp sé komin á Stuðlum sem nái ekki að sinna hlutverki sínu sem meðferðarúrræði vegna þess að meðferðarheimilið sé orðið að gæsluvarðhaldsfangelsi. Hún hefur mikla trú á samfélagslögreglu til að bregðast við vopnaburði barna. 3.9.2024 14:06
Tæplega þrjátíu missa vinnuna á Vestfjörðum Tæplega þrjátíu starfsmönnum Vestfirskra verktaka var sagt upp störfum á föstudaginn. Framkvæmdastjóri segir verkefnastöðu ekki nógu góða auk þess sem eigendurnir ætli hvort í sína áttina. 3.9.2024 10:00
Sakaður um kynferðisáreitni en mögulega farinn úr landi Rúmlega fertugur karlmaður frá Litháen hefur verið ákærður fyrir kynferðislega áreitni á salerni skemmtistaðarins Miðbarnum á Selfossi í ágúst 2022. Ekki hefur tekist að birta viðkomandi ákæruna og er hún því birt opinberlega í Lögbirtingablaðinu. 3.9.2024 09:49
Útskýrir hvers vegna hann mætti með hníf í skólann Landsliðsmarkvörður í handbolta lýsir því að hafa verið ungi strákurinn sem mætti með hníf í skólann á sínum tíma. Honum hafi liðið eins og allir í kringum sig gengju með hnífa og því gripið einn sjálfur. Þá líkt og nú hlusti enginn á börnin sem umfram allt þurfi að umvefja ást. 2.9.2024 14:36
Aðstoðarmaður ráðherra í baráttu við settan skrifstofustjóra Alls sóttu 22 um embætti skrifstofustjóra á skrifstofu húsnæðis- og skipulagsmála í innviðaráðuneytinu sem auglýst var um miðjan júlí. Umsóknarfrestur rann út þann 12. ágúst. 2.9.2024 12:19
Blöskrar grín árum saman að þjáningum kvenna Stjórnarformaður Hagsmunasamtaka brotaþola segir grín að nauðgunum ýta undir kynbundið ofbeldi. Hún tínir til dæmi frá mörgum helstu skemmtikröftum þjóðarinnar og segir tíma til kominn til að hætta að gera lítið úr ofbeldi. 2.9.2024 10:53
Unglingaslagsmál á Selfossi á borði lögreglu Lögreglan á Suðurlandi hefur til rannsóknar slagsmál unglinga undir Ölfusárbrú á Selfossi í gærkvöldi. Íbúi í bænum fullyrðir að fjórir til fimm grímuklæddir hafi ráðist að einum. 2.9.2024 10:10
Dagarnir miklu fleiri hjá Davíð og Ingibjörgu Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fékk greidda 143 ótekna orlofsdaga í starfi borgarstjóra. Dagarnir voru 93 hjá Davíð Oddssyni en fyrirkomulag við greiðslu ótekin orlofs var tekið upp þegar hann var borgarstjóri. Markús Örn Antonsson fékk greidda út 90 ótekna orlofsdaga. 31.8.2024 07:01
Framburður lykilvitnis fyrir dómi ekki talinn trúverðugur Héraðsdómur Reykjavíkur telur að framburður Péturs Jökuls Jónassonar í stóra kókaínmálinu hafi í öllum aðalatriðum verið ótrúverðugur. Hið sama megi segja um framburð lykilvitnis í málinu sem hafi um langt skeið verið útsettur fyrir verulegri hættu á eftirmálum ef hann tengdi Pétur Jökul við málið. 30.8.2024 11:48
Costco innkallar makkarónukökur vegna salmonellu Matvælastofnun varar við neyslu á nokkrum framleiðslulotum af frönskum makkarónukökum með pistasíukremi frá Joie De Vivre sem Costco Iceland hefur flutt inn, vegna salmonellumengunar. 29.8.2024 16:46