

Veður

Ísþoka hrímaði trjágróður á kaldasta stað landsins í dag
Ísþoka steig upp af Elliðaánum í Víðidal í dag og hrímaði trjágróður meðfram ánni. Þar mældist frostið 21,1 gráða á opinberri mælistöð Veðurstofunnar og reyndist þetta kaldasti staður á láglendi Íslands í dag.

Kalt og rólegt veður á fyrsta degi ársins
Á þessum fyrsta degi ársins er útlit fyrir rólegt veður víðast hvar. Reikna má með hægum vindi og léttskýjuðu veðri, en norðvestan strekkingi og dálitlum éljum fyrir austan.

Hér eru brennurnar á höfuðborgarsvæðinu
Fjórtán áramótabrennur verða tendraðar á höfuðborgarsvæðinu í dag, fjórum fleiri en útlit var fyrir í haust. Þá gæti stórkostleg norðurljósasýning veitt flugeldum samkeppni á himni í kvöld.

Talsvert frost en rólegt veður þegar nýtt ár gengur í garð
Veðurstofan spáir því að þegar nýtt ár gengur í garð verði kalt og rólegt veður víðast hvar á landinu. Því sé hætt við talsverðri flugeldamengun. Á nýársdag verði fremur hæg norðlæg átt, víða bjart og kalt veður.

Nokkura bíla árekstur á Vatnaleið
Björgunarsveitarmenn frá Berserkjum í Stykkishólmi og Klakki í Grundarfirði aðstoðuðu í dag fjölda fólks eftir árekstur nokkurra bíla á Vatnaleið á Snæfellsnesi. Vel mun hafa gengið að aðstoða fólk á heiðinni við erfiðar aðstæður og ófærð.

Hægur vindur og slæm loftgæði
Áramótaspá Veðurstofu Íslands spáir hægum vindi á gamlárskvöld og talsverðu frosti. Loftgæðin verða víðast hvar slæm.

„Mjög margir sem gleyma því og eru þá eins og beljur á svelli“
„Þetta er búið að ganga lygilega vel. Það voru fjórir til fimm árekstrar í morgun en síðan hefur ekkert verið kallað í okkur. Við héldum að það yrði meira, sérstaklega þegar að menn voru að fara í vinnuna. Það varð ekki raunin, vegna þess að þegar það bætist í umferðina, hægist á öllu, því sumir eru verr útbúnir en aðrir.“

Snjórinn léttur og laus í sér og fer auðveldlega af stað
Snæviþakin jörð blasti við íbúum á höfuðborgarsvæðinu þegar þeir héldu út í daginn í morgun. Talsverður lausasnjór er nú á Vesturlandi og með deginum tekur að blása úr norðaustri og því er útlit fyrir að ansi blint verði á vestan til.

Segir umferðarmenninguna oft erfiða á Hellisheiðinni
Gottlieb Konráðsson segir snjómokstur hafa gengið vel á Hellisheiði í vetur. Það hafi verið lítill snjór. Meiri skafrenningur og hálka. Hann segir umferðarmenninguna rosalega á Hellisheiðinni og ökumenn oft skapa hættulegar aðstæður með því að flýta sér of mikið.

Snjómokstur hófst klukkan fjögur í nótt
Eiður Fannar Erlendsson yfirmaður vetrarþjónustu í Reykjavíkurborg segir snjómokstur hafa gengið vel í morgun. Færðin sé tiltölulega góð í borginni.

Snjóþekja og skafrenningur gætu sett strik í reikninginn
Töluverð snjókoma blasti við íbúum höfuðborgarsvæðisins í morgun en viðbúið er að þar hætti að snjóa þegar líða tekur á morguninn. Veðurstofa hvetur vegfarendur til að kynna sér fréttir af færð og veðri áður en lagt er af stað í ferðalög en nýfallin snjór og hvassviðri gæti til að mynda valdið skafrenningi og lélegu skyggni, einkum í kvöld og í fyrramálið. Hætt er við að vegir teppist, einkum á Snæfellsnesi og í Dölum og víðar á Vesturlandi.

Heitavatnsleki geti leikið hús jafn illa og bruni
Húseigendur þurfa að hafa varann á og gera viðeigandi ráðstafanir í kuldakastinu sem nú gengur yfir. Þetta segir forvarnasérfræðingur. Vatnsleki geti haft sömu áhrif á eignir og húsabruni.

„Það versta stendur yfir áramótin“
Kuldakast herjar á landið og búast má við tveggja stafa frosti næstu daga. Veðurfræðingur spáir mestum kulda yfir áramótin og þykir líklegt að kuldatíðin teygi sig inn í nýja árið.

Kórmenn fastir um allan fjörð og uppseldum tónleikum frestað
Kuldakast sem nú gengur yfir landið mun að öllum líkindum vara langt inn í vikuna. Þrátt fyrir það verður víða hæglætisveður á gamlárskvöld, en aðra sögu var að segja í Skagafirði í gær þar sem fresta þurfti stórtónleikum vegna færðar. Kórmenn sátu fastir um allan fjörð og því reyna menn aftur í kvöld.

„Allt tal um baktjaldamakk er tóm þvæla“
Formaður utanríkismálanefndar Sjálfstæðisflokksins gefur lítið fyrir gagnrýni flokksfélaga á mögulega frestun landsfundar flokksins fram í haust. Allt tal um baktjaldamakk sé þvæla og jafnvel grunnskólabörn viti hvernig tíðarfarið sé í febrúar.

Útlit fyrir snjókomu vestast
Minnkandi norðanátt er í dag og búist er við því að það dragi úr éljum og að áfram verði bjart um sunnanvert landið. Þá er harðnandi frost og í kvöld er útlit fyrir snjókmu vestast á landinu, en líklega mun hún einungis standa yfir í nokkra klukkutíma.

Björgunarsveitir aðstoðað tugi vegfarenda
Björgunarsveitir allt frá uppsveitum Borgarfjarðar og norður í Skagafjörð hafa aðstoðað tugi vegfarenda frá sunnanverðri Holtavörðuheiði og inn í syðstu svæði Vestfjarðarkjálka við að komast leiðar sinnar í kvöld.

Holtavörðuheiði og Súðavíkurhlíð lokað
Súðavíkurhlíð verður lokað á ný í kvöld, ekki seinna en klukkan 21:30, vegna snjóflóðahættu. Athugað verður með opnun í fyrramálið.

„Kirsuberið ofan í lygakokteilinn sem hefur verið framreiddur“
Stjórnarmaður SUS gefur lítið fyrir hugmyndir um að fresta landsfundi Sjálfstæðisflokksins fram á haust af veðurfarslegum ástæðum. Lygasagan um paradísina sem er íslenskt haustveður sé ekki nógu góð.

Ófært í Ísafjarðardjúpi
Ófært er í Ísafjarðardjúpi og á Dynjandisheiði á Vestfjörðum. Þá er ófært um Breiðdalsheiði á Austurlandi og á Fróðárheiði á Vesturlandi.

Smálægðir keppast við að stýra veðrinu í dag
„Í dag keppast smálægðir um að stýra veðrinu hjá okkur,“ segir í textaspá Veðurstofunnar um veðrið í dag.

Tveggja stafa frost í kortunum og sundlaugar gætu þurft að loka
Kuldakast sem er í veðurkortunum gæti haft áhrif á sundlaugarnar yfir áramótin. Veitur biðla til fólks að fara sparlega með heita vatnið á meðan það gengur yfir.

Súðavíkurhlíð opin á ný
Búið er að opna veginn á milli Ísafjarðar og Súðavíkur. Vegurinn hefur verið lokaður vegna mikillar snjóflóðahættu.

Búið að opna Holtavörðuheiði á ný
Vegurinn um Holtavörðuheiði var opnaður á ný fyrir hádegi eftir að hafa verið lokaður síðan í gær.

Spáir stillu og miklu svifryki um áramótin
Sigurður Þ. Ragnarsson sem betur er þekktur sem Siggi stormur segir veðrið um jólin að mestu hafa gengið eftir. „Þetta var bara skítaveður,“ sagði Sigurður í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Hann segir spár benda til þess að veðrið verði fínt um áramót. Það verði stilla á nær öllu landinu en að henni muni fylgja slæm loftgæði þegar fólk byrjar að sprengja flugelda.

Hættulega heitir dagar fleiri og mannskæðari en áður
Loftslagsbreytingar á jörðinni gerðu það að verkum að á árinu sem er að líða fjölgaði dögum þar sem hitinn er hættulegur mannfólki mikið, eða um sex vikur að meðaltali. Þetta þýðir að hitabylgjum hefur fjölgað og þær vara lengur í hvert skipti. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn sem Guardian fjallar um í dag.

Holtavörðuheiði enn lokuð
Vegurinn um Holtavörðuheiði er ennþá lokaður og er reiknað með að staðan verði tekin á ný um hádegi.

Stíf suðvestanátt áfram ríkjandi
Milli Íslands og Grænlands er nú dálítil lægð sem nálgast smám saman landið. Stíf suðvestanátt verður því áfram ríkjandi um sinn og gengur á með skúrum eða slydduéljum framan af morgni, en síðar snjóéljum og kólnar í veðri. Hiti verður í hringum frostmark.

Tveir látnir úr sitthvorri áhöfninni í siglingakeppni í Sydney
Tvöfaldur harmleikur hefur slegið skútusiglingakeppni sem fer frá Sydney til Hobart í Ástralíu, tveir keppendur létu lífið með sama hætti í aðskildum atvikum. Fjöldi keppenda hafði fyrir dregið sig úr keppni vegna veðurs.

Áfram töluverð snjóflóðahætta á Vestfjörðum
Snjóflóðahætta er á Vestfjörðum eftir mikið fannfergi síðustu daga og er vegurinn um Súðavíkurhlíð lokaður. Nokkur snjóflóð féllu á vegi á Vestfjörðum í nótt.