„Norðan óveður á landinu í dag“ Von er á óveðri á landinu í dag og snjókomu eða slyddu á Norður- og Austurlandi. Hlýna mun þó þegar líður á daginn með talsverðri rigningu á láglendi. Viðvaranir verða í gildi á öllu landinu í dag. Innlent 3.6.2025 06:26
Kalla út snjóruðningstæki og bændur koma búfé í skjól Óvissustigi almannavarna hefur verið lýst vegna yfir vegna norðanáhlaups sem spáð er næsta sólarhringinn. Búist er við samgöngutruflunum og fólk er hvatt til að fylgjast vel með veðurspám. Bændur hafa unnið að því í allan dag að koma búfénu í skjól. Innlent 2.6.2025 19:37
Lýsa yfir óvissustigi vegna veðurs Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjórana á Norðurlandi vestra, Norðurlandi eystra, Austurlandi og Suðurlandi, hefur lýst yfir óvissustigi almannavarna frá og með klukkan 18 í kvöld, vegna norðanáhlaups sem spáð er næsta sólarhringinn. Veður 2.6.2025 16:10
Breytileg átt og skúrir á víð og dreif Veðurstofan gerir ráð fyrir fremur hægri breytilegri átt í dag og skúrum á víð og dreif, einkum seinnipartinn. Veðrið hefur því lítið breyst frá því sem var í gær og fyrradag. Veður 30. maí 2025 07:04
Skin og skúrir í dag Í dag, uppstigningardag, er spáð svipuðu veðri og var í gær. Fremur hægri breytilegri átt með skúrum nokkuð víða, sérstaklega síðdegis en þá geta orðið nokkuð öflugar dembur sums staðar inn til landsins. Veður 29. maí 2025 07:50
Hægviðri og lítilsháttar væta Veðurstofan gerir ráð fyrir að í dag og næsti daga verði hægviðri um allt land með skúrum eða lítilsháttar vætu. Veður 28. maí 2025 07:04
Víða skýjað, væta og hiti að þrettán stigum Veðurstofan gerir ráð fyrir breytilegri átt í dag, þremur til átta metrum á sekúndu, en norðvestantil er hins vegar spáð átta til þrettán metrum fram á kvöld. Veður 27. maí 2025 07:10
Áfram norðanátt og sums staðar strekkingsvindur Skammt norðaustur af Færeyjum er hægfara lægð sem viðheldur norðanáttinni hjá okkur í dag og má reikna með fimm til þrettán metrum á sekúndu. Veður 26. maí 2025 07:11
Rigning í kortunum Yfir landinu er grunn lægð sem hreyfist lítið. Í dag má búast við fremur hægri og breytilegri átt og skýjað verður á flestöllu landinu. Veður 25. maí 2025 07:38
Hitabylgjan sú mesta í maímánuði svo vitað sé Hitabylgjan sem reið yfir landið dagana 13. til 22. maí er sú mesta sem vitað er um í maímánuði hér á landi. Tíu daga í röð mældist hiti 20 stig eða hærri einhvers staðar á landinu og fjöldi hitameta í maímánuði var sleginn. Veður 24. maí 2025 08:59
Skýjað og sums staðar blautt Lægð á Grænlandshafi stjórnar veðrinu á landinu í dag og önnur smálægð er við suðausturströndina. Veðurfræðingur spáir hægri og breytilegri átt. Veður 24. maí 2025 07:42
Reikna með talsverðri rigningu austantil Á Grænlandshafi er nú hægfara lægð en skil hennar þokast austur yfir landið í dag með tilheyrandi sunnankalda eða -strekkingi og rigningu. Það dregur úr vindi vestantil með kvöldinu. Veður 23. maí 2025 07:16
Varað við snörpum hviðum Veðurfræðingur Vegagerðarinnar hefur varað við snörpum hviðum undir Hafnarfjalli og á norðanverðu Snæfellsnesi síðar í dag. Veður 22. maí 2025 15:43
Leiðin opnast fyrir lægðir að sækja að landinu Hæðin milli Íslands og Skotlands, sem stjórnað hefur góða veðrinu síðustu daga, er að gefa eftir og því opnað leiðina fyrir lægðir að sækja að landinu. Veður 22. maí 2025 07:12
Áfram hlýtt og bjart en lægð nálgast Áfram er búist við hlýju og björtu veðri í dag, en víða lágskýjuðu eða þokubökkum og svalara lofti við ströndina. Veður 21. maí 2025 07:09
Fæstir bera nægilega mikið af sólarvörn á sig Íslendingar nota fæstir nægilega mikla sólarvörn að mati lækna sem vara við því að það geti tekið óvarið fólk skamman tíma að brenna þessa dagana. Slíkt getur haft alvarleg áhrif síðar. Þeir hvetja fólk til að bera á sig sólarvörn og velja hana vel. Innlent 20. maí 2025 20:33
Áfram sól og hlýtt í veðri Veðurstofan gerir ráð fyrir hægri breytilegri átt eða hafgolu í dag. Víða verður léttskýjað og hlýtt í veðri, en sums staðar þoka við ströndina norðan- og vestanlands og mun svalara. Veður 20. maí 2025 07:03
Brýna fyrir eigendum að skilja hunda ekki eftir í bílum Matvælastofnun hefur brýnt fyrir hundaeigendum á að skilja hunda ekki eftir í bílum þegar heitt er í veðri. Hundur fékk hitaslag og dó á höfuðborgarsvæðinu um helgina og annar endaði á dýraspítala hætt kominn. Innlent 19. maí 2025 12:15
Hársbreidd frá hitameti í borginni Minnstu munaði að hitamet fyrir maímánuð í Reykjavík hefði verið slegið í blíðviðrinu í gær, nánar tiltekið munaði það aðeins hálfri gráðu. Áfram verður hlýtt, þurrt og tiltölulega bjart í dag og á morgun en það dregur síðan til tíðinda á fimmtudag. Innlent 19. maí 2025 11:57
Getur víða farið yfir tuttugu stig Hæð yfir landinu stýrir veðrinu í dag og verður áfram hlýtt í veðri. Útlit er fyrir fremur hæga breytilega átt eða hafgolu og víða björtu veðri, en við ströndina eru líkur á þokulofti, einkum sunnan- og vestanlands. Veður 19. maí 2025 07:20
Þrír góðir veðurdagar framundan: „Rjómablíða út um allt“ Veðurfræðingur segir frávik í loftstraumum valda hlýjunni sem hefur verið undanfarna daga. Næstu þrjá daga verður áfram gott veður áður en væta tekur við. Honum þykir líklegt að maímet hafi fallið á þónokkrum stöðum í dag. Veður 18. maí 2025 23:35
Hundur drapst af völdum hitaslags á höfuðborgarsvæðinu Hundur fékk hitaslag og dó á höfuðborgarsvæðinu í gær og endaði annar á dýraspítala hætt kominn. Fjöldi hunda hefur sloppið af heimilum sínum og týnst í dag vegna sólarþyrstra eiganda sem hafa skilið eftir opið út. Innlent 18. maí 2025 18:39
Hitamet maímánaðar frá 1960 næstum fallið Hæsti hiti í Reykjavík mældist í dag 20,4 stig og vantaði aðeins 0,2 stig til að jafna maí-hitamet frá 14. maí 1960. Veður 18. maí 2025 17:48
Hiti getur farið yfir 20 stig Í dag verður hæg breytileg átt á landinu eða hafgola og víða léttskýjað. Líkur eru á þokulofti við ströndina. Hiti á bilinu 10 til 24 stig, hlýjast inn til landsins en svalast í þokulofti. Veður 18. maí 2025 10:30