Sveitar­stjórnar­kosningar 2026

Sveitar­stjórnar­kosningar 2026

Fréttir og greinar tengdar sveitastjórnarkosningum sem fram fóru 16. maí 2026.


Fréttamynd

D og B endur­nýja heitin í Fjarða­byggð

Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn í Fjarðabyggð hafa undirritað nýjan málefnasamning fyrir kjörtímabilið 2026–2030. Flokkarnir hafa starfað saman í meirihluta frá árinu 2024.

Innlent
Fréttamynd

Hildur vilji Einar í meiri­hluta hvernig sem fer

Oddvitar Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, Hafnarfirði og Mosfellsbæ kanna nú allir forsendur fyrir meirihlutaviðræðum með Viðreisn. Viðræður eru hafnar í Mosfellsbæ og í Hafnarfirði er einnig rætt við Samfylkinguna. Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík hitti oddvita Viðreisnar, Samfylkingar og Miðflokks á Kjarvalsstöðum í dag.

Innlent
Fréttamynd

„Þetta parísarhjól sökkar“

Fréttir af því að parísarhjól á Miðbakka muni líklega rísa á ný hafa fallið í grýttan jarðveg. Margir undra sig á ákvörðun borgarinnar um að ganga til viðræðna við rekstraraðila hjólsins og syrgja körfuboltavöllinn og hjólabrettasvæðið sem var þar áður. Formaður borgarráðs segir að ekki hafi fundist tími til að finna eitthvað annað fyrir svæðið og að tilvonandi meirihluti hafi ekki sett sig upp á móti framlengingunni.

Menning
Fréttamynd

Funduðu án Valdimars og ætla að hittast aftur

Oddvitar Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Samfylkingar í Hafnarfirði hittust á óformlegum fundi í morgun til að ræða mögulegt meirihlutasamstarf. Fundurinn gekk vel og munu þeir hittast aftur til þess að ákveða næstu skref.

Innlent
Fréttamynd

Sam­fylkingin mót­mælti til­lögu borgar­stjóra

Svo virðist sem parísarhjólið muni rísa á Miðbakka í Reykjavíkurhöfn í þriðja sinn í sumar. Borgarráð Reykjavíkur hefur samþykkt tillögu þess efnis að bjóða Taylors Tivoli Iceland ehf. til viðræðna um framlengingu samnings um afnot af svæðinu til að reka parísarhjól, þrátt fyrir mótmæli Samfylkingar.

Innlent
Fréttamynd

Á hreinu að Valdimar hefði fengið bæjarstjórastólinn

Orri Björnsson oddviti Sjálfstæðisflokksins segir að áður en viðræðum var slitið við Framsókn hafi samningar tekist um að Valdimar Víðisson yrði næsti bæjarstjóri Hafnarfjarðar. Þeir hafi handsalað það að halda viðræðum áfram daginn eftir, en svo hafi skrítin atburðarás farið af stað sem lauk með því að Sjálfstæðisflokkur sleit viðræðum.

Innlent
Fréttamynd

Vil­hjálmur verður bæjar­stjóri

Vilhjálmur Árnason, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ, verður bæjarstjóri en hann og Gunnlaugur Kárason, oddviti Miðflokksins, skrifuðu í dag undir málefnasáttmála nýs meirihluta. Gunnlaugur verður formaður bæjarráðs.

Innlent
Fréttamynd

„Ég er ekki nógu góður í slíkri skák“

Valdimar Víðisson oddviti Framsóknar í Hafnarfirði og bæjarstjóri segir af og frá að hann hafi sett upp leikrit og komið óheiðarlega fram í meirihlutaviðræðum. Hann hafi komið fram af heilindum og komið því á framfæri við oddvita Sjálfstæðisflokksins í morgun. Framsókn sé enn reiðubúin í meirihlutaviðræður verði þess óskað.

Innlent
Fréttamynd

Skraf Sjálf­stæðis­manna í húsi Snarfara

Fundur kjörinna borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins hófst um tuttugu mínútur yfir þrjú. Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, fundaði með oddvitum Viðreisnar, Framsóknar og Miðflokks í gær.

Innlent
Fréttamynd

Hyggjast halda sam­starfinu á­fram

Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkur hafa formlega hafið viðræður um myndun meirihluta í Múlaþingi. Flokkarnir hafa unnið saman síðustu kjörtímabil.

Innlent
Fréttamynd

Við­reisn líst hvorki á Fram­sókn né Miðflokk

Oddviti Viðreisnar í Hafnarfirði segir samstarf við Framsókn ekki lengur spennandi kost vegna meints trúnaðarbrests oddvita flokksins. Þá segir hún erfitt að sjá fyrir sér meirihluta með Miðflokki. Möguleikar Framsóknar á að komast í meirihluta í bænum virðast því úti.

Innlent
Fréttamynd

Kristinn verður á­fram bæjar­stjóri

Í Snæ­fells­bæ var Sjálf­stæðis­flokkurinn einn í fram­boði og var því sjálf­kjörið í sveitar­stjórn. Til að fagna kjör­deginum og gera fólki daga­mun hélt fram­boðið kosninga­kaffi á kjör­dag.

Innlent
Fréttamynd

Tíðindi í vændum: Boðar borgar­stjórnar­flokkinn á fund

Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, mun boða  borgarfulltrúa flokksins á fund sinn í dag til skrafs og ráðagerða. Það er í fyrsta skipti eftir úrslit sveitarstjórnarkosninganna sem oddvitinn hittir fulltrúana formlega. Sjálfstæðisflokkurinn fékk níu borgarfulltrúa kjörna í sveitarstjórnarkosningunum eða þrjá fleiri en í síðustu kosningum. Ekki er ósennilegt að von sé á fleiri tíðindum í dag eða á morgun. 

Innlent
Fréttamynd

Nokkrir hlut­falls­lega á pari við Heiðu

Töluvert var strikað yfir nafn Heiðu Bjargar Hilmisdóttur, fráfarandi borgarstjóra, í nýafstöðnum sveitarstjórnarkosningum. Fréttastofa kannaði útstrikanir í nokkrum sveitarfélögum og ef litið er hlutfallslega á niðurstöðurnar eru nokkrir á pari við Heiðu.

Innlent