Alþingis- og sveitar­stjórnar­menn

Alþingis- og sveitar­stjórnar­menn

Skoðanagreinar eftir kjörna fulltrúa á Alþingi og í sveitarstjórnum.

Fréttamynd

Já fyrir ís­lenskuna!

Segi íslenska þjóðin já í þjóðaratkvæðagreiðslunni á laugardag, gætu opnast áhugaverðar dyr fyrir þróun íslenskunnar. Í aðildarviðræðum sem þá færu í hönd, myndum við sækjast eftir því að íslenskan verði eitt af opinberum tungumálum Evrópusambandsins.

Skoðun

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Hverjum treystir þú?

Ég er hugsi. Ég hef fengið veður af því að nýjasta vopn nei-hliðarinnar sé að vekja efasemdir um það hvort hægt sé að treysta Þorgerði Katrínu og Kristrúnu. Það er markvisst verið að búa til þá mynd að ekki sé hægt að treysta þeim fyrir vegferðinni.

Skoðun
Fréttamynd

Spænskir strandveiðisjómenn til Ís­lands

Það er merkilegt hvað Evrópusambandsaðild á að breyta litlu á Íslandi samkvæmt þeim sem vilja kíkja í pakkann. Við eigum áfram að ráða yfir fiskimiðunum, eigum áfram að ákveða hverjir veiða fiskinn.

Skoðun
Fréttamynd

Áður en lengra er haldið

Íslenskur landbúnaður verður ekki endurreistur á einni nóttu ef gæði og sérstaða afurða hverfa. Þekking, reynsla, sjálfbær nýting landgæða og samheldni samfélaga í sveitum byggjast upp á áratugum. Þess vegna á að fara varlega með ákvarðanir sem breyta starfsumhverfi greinarinnar til frambúðar.

Skoðun
Fréttamynd

Trump á ekki að vera á­stæðan

Sú hugmynd hefur oft skotið upp kollinum síðustu daga og vikur að óvissa á alþjóðavettvangi eigi að hvetja Íslendinga til að leita skjóls í Evrópusambandinu. Það væri fljótfærnisleg og vond ástæða til að láta ráða atkvæði sínu komandi laugardag.

Skoðun
Fréttamynd

Fleiri val­kostir og sterkari staða ef við segjum já

Ég segi já 29. ágúst. Það geri ég vegna þess að heimurinn er að breytast – og ég tel okkur tvímælalaust hafa fleiri möguleika, fleiri valkosti og vera í sterkari stöðu ef við göngum til viðræðna við Evrópusambandið nú, heldur en ef við sleppum því.

Skoðun
Fréttamynd

Samkeppniseftirlitið eitt og sér

Á Íslandi ríkir víðtæk fákeppni á mörgum sviðum sem mikilvægt er að sporna gegn enda leiðir hún til hærra verðlags á vöru og þjónustu. Einn liður í því að standa vörð um samkeppni er að efla Samkeppniseftirlitið með það fyrir augum að stytta málsmeðferðartíma.

Skoðun
Fréttamynd

Opnum dyr fyrir inn­viða­fjár­festingu um allt land

Ísland stendur frammi fyrir stórfelldri innviðauppbyggingu á næsta áratug. Leggja þarf vegi, byggja brýr og göng, styrkja raforkukerfið og fjárfesta í höfnum, flugvöllum, vatns- og fráveitum og öðrum samfélagsinnviðum um allt land.

Skoðun
Fréttamynd

Komin með nóg af um­ræðu um ESB?

Það er óhætt að segja að samfélagið hafi verið undirlagt af umræðu um Evrópusambandið frá því tillaga utanríkisráðherra um þjóðaratkvæðagreiðslu var samþykkt í maí sl. Er þá sama hvort um fréttamiðlana, hlaðvarpsþætti, heitu pottana eða útilegur er að ræða.

Skoðun
Fréttamynd

Til hvers var þá barist?

Kynslóðir á undan okkur hafa komið Íslandi frá því að vera eitt fátækasta ríki Evrópu til þess að vera eitt það ríkasta. Barist var fyrir sjálfstæði og fullveldi með kjafti og klóm, oft við ofurefli, en að lokum náðum við okkar fram.

Skoðun
Fréttamynd

Já við fleiri verk­færum fyrir byggðir landsins

Lægri vextir, stöðugra verðlag og lægri framfærslukostnaður skipta heimili og fyrirtæki miklu máli. Það er því ekki skrýtið að þau mál séu fyrirferðarmikil í umræðunni um Evrópusambandið. Íslendingar borga hæstu vexti í Evrópu og við borgum mest fyrir matarkörfuna í annars frábæru landi. Já, þetta eru sterk rök fyrir því að segja JÁ í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst nk.

Skoðun
Fréttamynd

Spörum milljarða

Það hefur ekki farið framhjá neinum að framundan er kosning um hvort hefja eigi viðræður við ESB um aðild að sambandinu. Flest venjulegt fólk er nú þegar orðið þreytt á þessu karpi, sem er skiljanlegt.

Skoðun
Fréttamynd

Drottningaviðtal – þegar ein rödd fær sviðið

Stundum hlusta ég á viðtöl um umdeild mál í samfélaginu og velti fyrir mér hvert hlutverk spyrilsins eiginlega sé. Viðmælandi fær orðið og segir sína sögu. Það er gott og gilt. Vandinn byrjar þegar frásögn eins einstaklings fær að standa nær óáreitt, jafnvel lengi, án þess að spurt sé um það sem kann að vanta í myndina.

Skoðun
Fréttamynd

Hvers­dags­leg menning og majónes

Menningarnótt gefur okkur tilefni til að fagna ólíkum birtingarmyndum menningar og því tökum við í menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu fagnandi og bjóðum til brauðtertuveislu á morgun kl. 15 í Reykjastræti 8. Boðið verður upp á lengstu brauðtertu landsins, listasýningu byggða á íslensku brauðtertunni og tónlistaratriði.

Skoðun
Fréttamynd

Hefur ein­hver trú á topplistum?

Ég vona að flestir Íslendingar hafi átt gott sumarfrí þrátt fyrir misjafna skiptingu veðurblíðunnar um landið og séu nú að snúa endurnærðir aftur til vinnu. Við ættum ekki að taka frídögunum okkar sem gefnum.

Skoðun
Fréttamynd

Aðilar vinnu­markaðar munu á­fram gera kjara­samninga innan ESB

Þegar kemur að vinnumarkaðsmódelum og samanburði við okkar íslenska vinnumarkaðsmódel, samningamódel kjarasamninga, þá hef ég orðið var við áhyggjur fólks sem almennt telst vera neikvætt fyrir aðild Íslands að Evrópusambandinu (ESB) og að þessi þáttur geri það að verkum að ómögulegt sé fyrir Ísland að gerast aðildarríki

Skoðun
Fréttamynd

Við erum á plast­bát í ólgu­sjó

Í gær hækkaði Seðlabanki Íslands stýrivexti í 8%, meðal annars með vísan til verðbólguáhrifa stríðsins í Mið-Austurlöndum. Viðbrögðin hafa ekki látið á sér standa - enda vonbrigðin mikil og áhrifin grafalvarleg fyrir heimili sem skulda og fyrirtæki sem reiða sig á krónuna og krónulán í sínum rekstri.

Skoðun
Fréttamynd

Já, fyrir vísindi, ný­sköpun og menningu

Þegar rætt er um Evrópusambandið verður umræðan oft víðfeðm og almenn. En í þeim málaflokkum sem ég ber ábyrgð á er Evrópusamstarfið mjög áþreifanlegt. Fólk sem starfar við rannsóknir, nýsköpun, háskóla og í menningu reiðir sig í vaxandi mæli á framlög sem koma úr samstarfsáætlunum ESB.

Skoðun
Fréttamynd

Evrópu­sam­bandið og heil­brigðis­mál - saman værum við sterkari

Í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna við Evrópusambandið (ESB) hefur lítið verið rætt um heilbrigðismál. Það skýrist án efa af því að reglur um heilbrigðisþjónustu innan ESB eru að meginstefnu til ekki samræmdar milli aðildarríkja. Því ákveður hvert ríki fyrir sig hvernig heilbrigðisþjónustan er skipulögð, veitt og fjármögnuð.

Skoðun
Fréttamynd

Hálf­gert vand­ræða­barn

„Frábært að eiga krónuna en ferlegt að skulda hana“, sagði Guðni Th. Jóhannesson, fyrrum forseti, í mögnuðu viðtalið í Silfrinu. Þetta er kjarni málsins enda krónan „hálfgert vandræðabarn“ svo vitnað sé aftur til orða Guðna.

Skoðun
Fréttamynd

Tæki­færi til bættra samganga

Nú styttist í þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort halda eigi áfram aðildarviðræður við ESB. Eðlilega eru margir að horfa í lækkun vaxta og verðbólgu í samhengi við aðildarviðræður, enda er það eitt stærsta hagsmunamál íslenskra heimila og fyrirtækja.

Skoðun