

NBA
Fréttir úr körfuboltadeild hinna bestu.

NBA í nótt: San Antonio vann Phoenix í tvíframlengdum leik
Úrslitakeppnin í NBA-deildinni fór af stað í gær og óhætt að segja að hún hafi byrjað með miklum stæl.

Isiah Thomas rekinn úr þjálfarastól Knicks
Isiah Thomas var í kvöld sagt upp störfum sem þjálfari New York Knicks í NBA deildinni. Loksins segja sumir. Thomas er þó ekki hættur störfum hjá félaginu.

Sérfræðingar Stöðvar 2 spá í spilin í NBA
Úrslitakeppnin í NBA hefst með látum annað kvöld. Vísir fékk sérfræðinga Stöðvar 2 Sport til að rýna í fyrstu umferðina, gefa sitt álit og spá fyrir um úrslit leikja.

Eigendur samþykkja flutning Sonics
Eigendur félaganna 30 í NBA deildinni gáfu í kvöld grænt ljós á að lið Seattle Supersonics yrði flutt til Oklahoma City. 28 af 30 eigendum lögðu blessun sína yfir flutninginn og því hefur þetta rótgróna félag færst ein skrefinu nær óhjákvæmilegum flutningi.

Úrslitakeppnin hefst á morgun
Úrslitakeppni NBA-deildarinnar hefst á morgun þegar fjórar af átta fyrstu rimmunum í fyrstu umferð keppninnar fara af stað.

Chicago og Milwaukee reka þjálfarana
Deildarkeppninni í NBA lauk í gærkvöldi og biðu tvö félaganna sem áttu lélega leiktíð ekki boðanna og ráku þjálfara sína.

100 þrefaldar tvennur hjá Jason Kidd
Jason Kidd náði í nótt sinni 100. þrefaldri tvennu og þeirri fyrstu síðan hann gekk aftur til liðs við Dallas Mavericks í vetur.

NBA: Mikið í húfi í lokaumferðinni í nótt
Í kvöld fara fram 14 leikir í NBA deildinni í körfubolta en hér eru á ferðinni síðustu leikirnir í deildarkeppninni. Mikið á enn eftir að skýrast varðandi uppröðun liða í úrslitakeppnina á lokakvöldinu.

Meistararnir geta dottið niður í sjötta sætið
Lokakeppnisdagur tímabilsins í NBA-deildinni fyrir úrslitakeppnina fer fram í nótt. Enn ríkir gríðarlega mikil spenna í Vesturdeildinni ef frá eru talin tvö efstu sætin sem LA Lakers og New Orleans hafa þegar tryggt sér.

NBA: Lakers bestir í Vestrinu
LA Lakers tryggði sér í nótt efsta sæti Vesturdeildarinnar með sigri í lokaleik sínum fyrir úrslitakeppnina - á Sacramento, 124-101.

NBA í nótt: Golden State úr leik
Golden State tapaði fyrir Phoenix í NBA-deildinni í nótt sem þýðir að Denver er með öruggt sæti í úrslitakeppninni.

NBA í nótt: Lakers á toppinn í Vestrinu
LA Lakers vann sinn þriðja leik í röð í NBA-deildinni í nótt og um leið mikilvægan sigur í toppslag Vesturdeildarinnar er liðið vann San Antonio, 106-85.

NBA: Mikil barátta um 8. sætið í Vesturdeildinni
Níu leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Denver og Golden State há mikla baráttu um áttunda og síðasta sætið inn í úrslitakeppni Vesturdeildarinnar þar sem þau eru nú hnífjöfn í áttunda og níunda sæti.

Shaq gerir gæfumuninn hjá Phoenix
Tracy McGrady, leikmaður Houston Rockets, segir að lið Phoenix Suns hafi hagnast verulega á því að næla í miðherjann Shaquille O´Neal í vetur og enginn hafi hagnast meira á því en framherjinn Amare Stoudemire.

Lakers vann Kyrrahafsriðilinn
Nokkrir stórleikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt. LA Lakers tryggði sér sigur í Kyrrahafsriðlinum með sigri á New Orleans 107-104 og vann riðil sinn í fyrsta skipti í fjögur ár. Liðið tryggði sér þar með heimavallarrétt í fyrstu umferð úrslitakeppninnar.

Hvaða lið komast í úrslitakeppni NBA?
Denver vann í nótt gríðarlega mikilvægan sigur á Golden State í baráttu liðanna um áttunda og síðasta sætið inn í úrslitakeppnina í Vesturdeildinni í NBA.

Houston - Phoenix í beinni á Stöð 2 Sport í nótt
Síðasta beina útsendingin frá deildarkeppninni í NBA verður á Stöð 2 Sport klukkan hálfeitt í nótt þar sem Houston tekur á móti Phoenix. Hér er á ferðinni harður slagur tveggja liða sem eru að berjast um að ná sem bestri stöðu inn í úrslitakeppni Vesturdeildarinnar.

Útlitið dökkt hjá Golden State
Þrír leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Staða Golden State í baráttunni um sæti í úrslitakeppninni í Vesturdeildinni versnaði til muna þegar liðið tapaði 114-105 fyrir Denver á heimavelli.

Phoenix vann í San Antonio
Níu leikir voru á dagskrá í NBA deildinni í nótt. Phoenix vann góðan sigur á San Antonio á útivelli 96-79 í baráttunni í Vesturdeildinni.

Hátíð hjá Pistons - Rodman mætti ekki
Sérstök heiðurshátíð var haldin á heimavelli Detroit Pistons fyrir leik liðsins gegn New York Knicks þar sem 30 bestu leikmenn í sögu félagsins voru heiðraðir fyrir framlag sitt.

Bynum gæti spilað gegn meisturunum
Phil Jackson, þjálfari LA Lakers, segir að til greina komi að miðherjinn ungi Andrew Bynum komi við sögu í stórleik liðsins gegn San Antonio á sunnudaginn.

Utah skellti New Orleans
Ellefu leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt. New Orleans setti vafasamt met í vetur þegar liðið skoraði aðeins 66 stig á heimavelli í 77-66 tapi fyrir Utah í Vesturdeildarslagnum.

Ewing, Olajuwon og Riley í heiðurshöllina
Miðherjarnir Patrick Ewing og Hakeem Olajuwon eru á meðal þeirra sem vígðir verða inn í heiðurshöll körfuboltans í september næstkomandi. Fimmfaldur meistaraþjálfarinn Pat Riley var einnig á meðal þeirra sem komust inn að þessu sinni.

Kansas meistari í fyrsta sinn í 20 ár
Lið Kansas varð í nótt bandaríkjameistari í háskólakörfuboltanum þegar það lagði Memphis 75-68 í æsilegum og framlengdum úrslitaleik í San Antonio í Texas.

Mikilvægur sigur hjá Dallas
Tíu leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Dallas vann mjög mikilvægan útisigur á Phoenix 105-98 og styrkti stöðu sína í baráttunni um sæti í úrslitakeppni Vesturdeildarinnar.

Boston fær heimavallarrétt alla úrslitakeppnina
Eftir sigur Boston Celtics á Charlotte í nótt er ljóst að liðið hefur tryggt sér besta árangur allra liða í NBA-deildinni þetta tímabilið. Það verður því með heimavallarrétt alla úrslitakeppnina.

NBA í nótt: Boston á sigurbraut
Sex leikir voru háðir í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Boston Celtics trjónir á toppi síns riðils en liðið vann Charlotte á útivelli 101-78. Leon Powe skoraði 22 stig fyrir Boston og tók 9 fráköst.

Utah rassskellti San Antonio
Ellefu leikir fóru fram í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Þar bar hæst LA Lakers vann Dallas og New Orleans Hornets festi tak sitt á efsta Vesturstrandarinnar með sigri á New York Knicks, 118-110, á meðan San Antonio Spurs var rassskellt af Utah Jazz.

Barnalán í Boston
Leikmönnum Boston Celtics hefur gengið allt í haginn innan sem utan vallar í vetur. Liðið er með bestan árangur allra liða í NBA deildinni, en þar fyrir utan hafa nokkrir leikmanna liðsins orðið svo heppnir að verða feður á árinu.

NBA í nótt: Hughes góður gegn gömlu félögunum
Þrír leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Chicago vann nokkuð óvæntan útisigur á Cleveland 101-98 þar sem Larry Hughes var fyrrum félögum sínum erfiður og skoraði 25 stig, gaf 9 stoðsendingar og hirti 8 fráköst fyrir Chicago en LeBron James skoraði 33 stig fyrir Cleveland.