

Lögreglumál
Fréttir af verkefnum lögreglunnar á Íslandi.

Umræða um gróf kynferðisbrot eigi ekki að snúast um þjóðerni gerenda
Réttargæslumaður tveggja kvenna sem hafa kært hóp manna fyrir nauðgun, segir útlit fyrir að brotin hafi verið skipulögð. Móðir annarrar kvennanna segir miður að fólk noti málið til að kynda undir útlendingahatur í stað þess að virða hugrekkið sem konurnar sýna með því að leita réttar síns og skila skömminni.

Kastaði eggjum í bíl
Tilkynning um mann sem var að kasta eggjum í bíl barst lögreglustöð 4 í nótt, sem sér um Grafarvog, Mosfellsbæ og Árbæ. Maðurinn fannst ekki.

Bíllinn fannst þremur vikum eftir þjófnaðinn og þá lögfræðibók með
Bíl Starkaðs Péturssonar var stolið og fannst hann þremur vikum síðar þegar vinkona leikarans rambaði á ólæstan bílinn. Það eina sem fannst í bílnum var lögfræðibók og pennaveski. Spurningin er hvort þjófurinn hafi stolið hlutunum úr öðrum bíl eða eigi þá sjálfur.

Rannsóknaraðgerð lokið en málið enn til rannsóknar
Lögreglan á Suðurlandi fékk aðstoð sérsveitar ríkislögreglustjóra fyrr í kvöld við rannsóknaraðgerð. Aðgerðinni er lokið en hún var liður í máli sem er áfram til rannsóknar.

Þrír menn til rannsóknar vegna tveggja hópnauðgana
Þrír menn eru til rannsóknar vegna tveggja hópnauðgana í Reykjavík í síðasta mánuði. Einn mannanna var úrskurðaður í farbann vegna rannsóknarinnar en enginn þeirra er í gæsluvarðhaldi.

Gríðarlegir fjármunir sveitarfélaga í öryggisvistanir
Reykjavíkurborg ver álíka upphæð í öryggisvistanir fyrir tæplega fjörtíu manns og í sértækan húsnæðisstuðning fyrir 4500 manns. Sviðsstjóri velferðarsviðs segir málflokkinn afar umfangsmikinn og löngu tímabært að breyta og bæta lagaumhverfi. Borgin sé að sinna verkefni sem henni beri ekki að sinna.

Sérsveitin aðstoðar lögregluna á Suðurlandi
Sérsveit ríkislögreglustjóra var kölluð út til aðstoðar lögreglunni á Suðurlandi.

Ríkissaksóknari staðfestir niðurfellingu í stórri slysasleppingu
Ríkissaksóknari hefur staðfest ákvörðun Lögreglustjórans á Vestfjörðum á niðurfellingu rannsóknar á slysasleppingu sumarið 2023 þegar á annað þúsund eldislaxar sluppu úr kví Arctic Sea Farm ehf. á Patreksfirði. Lögreglustjóri gagnrýnir lögmenn veiðifélaga og fjölmiðla fyrir meint áhugaleysi í umfjöllun um málið.

Neitar að hafa orðið föður sínum að bana
Tæplega þrítug kona sem sætir gæsluvarðhaldi vegna gruns um aðild að andláti áttræðs föður síns á heimili þeirra í Garðabæ neitar sök að hafa orðið honum að bana. Þetta herma heimildir fréttastofu.

Barnaníðingur situr inni þar til hann verður sendur til Litáen
Litáískur karlmaður hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald á grundvelli evrópskrar handtökutilskipunar. Hann hefur ekki afplánað fjögurra og hálfs árs dóm vegna kynferðisbrota gegn barnungri stúlku í heimalandinu.

Pakki skemmdist og „óafhending“ varð
Lögreglan á Suðurnesjum varar sérstaklega við svikapósti eða SMS-i sem á að vera frá Póstinum.

Barn á óskoðuðum bíl á 151 kílómetra hraða
Talsverður erill var hjá Lögreglunni á Norðurlandi vestra yfir páskana. Meðal verkefna var að hafa afskipti að ökumanni á barnsaldri sem ók óskoðuðum bíl á 151 kílómetra hraða á klukkustund.

Stöðvaður á 116 kílómetra hraða
Lögregla var kölluð til í gærkvöldi vegna líkamsárásar á ölstofu í miðborg Reykjavíkur. Þegar lögregla kom á vettvang var sá grunaði farinn af vettvangi. Málið er í rannsókn samkvæmt dagbók lögreglunnar.

Svikahrappur beið eftir flugferð framkvæmdastjórans
Svikahrappar geta verið ósvífnir og þolinmóðir til þess að fá sem mest upp úr krafsinu. Þetta segir sérfræðingur sem minnir á mikilvægi þess að vera alltaf á varðbergi gagnvart netsvindli.

Gripu innbrotsþjófa glóðvolga
Aðstoðar lögreglu var óskað vegna innbrots en þjófarnir voru enn á vettvangi þegar lögreglu bar að garði og voru tveir handteknir. Þeir eru vistaðir í fangaklefa í þágu rannsóknar málsins.

Maðurinn er laus úr haldi
Maðurinn sem var handtekinn í morgun í tengslum við rannsókn lögreglu á áverkum konu í heimahúsi í Árnessýslu er laus úr haldi. Lögregla telur að um slys hafi verið að ræða.

Einn í haldi lögreglu vegna konu með skerta meðvitund
Einn er í haldi lögreglunnar á Suðurlandi eftir að tilkynning barst um konu með skerta meðvitund í heimahúsi í nágrenni við Selfoss. Maðurinn sem tilkynnti um áverka hennar var handtekinn og tengist henni fjölskylduböndum.

Viðbragð lögreglu og sjúkraflutningamanna í nágrenni Selfoss
Lögreglan er með mikið viðbragð í nágrenni við Selfoss. Lögreglubílar og sjúkrabílar hafa verið sendir á vettvang.

Ökumaður undir aldri í bílaeltingarleik við lögreglu
Lögregla hóf eftirför á eftir bíl sem ekið var talsvert yfir hámarkshraða á Hafnarfjarðarvegi í nótt. Þegar lögreglumenn gáfu ökumanni stöðvunarmerki jók hann ferðina og reyndi að stinga lögreglu af. Ökumaðurinn var handtekinn þegar hann stöðvaði loks bílinn og reyndist undir aldri.

Engin tengsl milli þolenda og gerenda
Karl og kona sem réðust á tvo í Ísafjarðarbæ virðast ekki hafa þekkt þolendurna að sögn yfirlögregluþjóns á Vestfjörðum. Hann segir ekkert benda til þess að um hatursglæp hafi verið að ræða. Frekari yfirheyrslur eru fyrirhugaðar á næstu dögum.

Handtekinn á Húsavík með tölvert magn fíkniefna
Lögreglan á Húsavík handtók karlmann á þrítugsaldri sem hafði töluvert magn meintra ólöglegra fíkniefna í fórum sér.

Áhyggjuefni að brotaþolar treysti ekki dómstólum
Talskona Stígamóta segir áhyggjuefni ef hópnauðganamálum fari fjölgandi. Fjöldi mála komi aldrei upp á yfirborðið, meðal annars vegna þess að brotaþolar treysti ekki kerfinu.

Tveir handteknir vegna líkamsárásar
Karl og kona voru handtekin í nótt vegna líkamsárásar í Ísafjarðarbæ. Veist var að tveimur til þremur einstaklingum í miðbæ bæjarins í nótt. Málið er á frumstigi.

Náðist á upptöku þegar skipulagðir þjófar tóku sjóðsvél
Brotist var í verslun í Reykjavík í gærkvöldi eða nótt þar sem sjóðsvél var stolið. Atvikið sést á upptökum. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, en þar segir að um skipulagðan þjófnað sé að ræða og að málið sé í rannsókn.

Skjólstæðingur heilbrigðisstofnunar veittist að starfsfólki
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út á stofnun spítala til aðstoðar hjúkrunarfólks á stofnuninni.

Handtekinn grunaður um vasaþjófnað í miðborginni
Lögreglan aðhafðist í miðborginni eftir að tilkynnt var um þrjá einstaklinga sem grunaðir voru um vasaþjófnað. Fannst einn þeirra þegar lögregla kom á vettvang og reyndist vera með nokkuð magn af ætluðu þýfi og fjármunum. Hinn grunaði var handtekinn og vistaður í fangageymslu í þágu rannsóknar málsins.

Háværar framkvæmdir stöðvaðar
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði tvisvar sinnum í dag afskipti af einstaklingum vegna háværra framkvæmda. Sérstaklega hávaðasamar framkvæmdir eru lögum samkvæmt bannaðar á helgidögum.

Bað lögreglu um að bjarga kettinum úr klóm nágrannans
Lögregla stöðvaði mann sem er sagður hafa verið með fíkniefni meðferðis og ókleift að sýna fram á hver hann væri. Grunar lögregla hann um sölu og dreifingu fíkniefna og tengsl við skipulagða brotastarfsemi. Maðurinn var vistaður í fangaklefa í þágu rannsóknar málsins.

Nafn mannsins sem lést í Garðabæ
Maðurinn sem lést í Garðabæ á mánudaginn hét Hans Roland Löf og var fæddur árið 1945. Gæsluvarðhald yfir dóttur mannsins var í dag framlengt um þrjár vikur.

„Þeir voru fullir af hatri á meðan þeir lömdu mig“
Hópur unglinga réðst á trans konu í Reykjavík síðastliðið haust. Árásin náðist á myndband en hún er enn óupplýst. Þetta kom fram í frétt RÚV í kvöld.