Frelssisvipting og fall á rafskutlu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í ýmis horn að líta í gærkvöldi og nótt. Innlent 6. desember 2020 07:27
Þvottavél stolið í miðjum þvotti Svo virðist sem að ansi bíræfinn þjófur hafi stolið þvottavél úr þvottahúsi í fjölbýlishúsi í 101 Reykjavík í gærkvöldi, í miðjum þvotti. Innlent 6. desember 2020 07:21
Grunur um sóttvarnarbrot á sýningu Lögreglan hefur nú til rannsóknar mögulegt brot á sóttvarnareglum eftir að sextán manna hópur mætti á sýningu í miðborg Reykjavíkur. Innlent 5. desember 2020 12:04
Tvær líkamsárásir og innbrot í skartgripaverslun Tvær líkamsárásir, innbrot í skartgripaverslun og tilkynningar um fimm heimilisofbeldismál voru á meðal þess sem kom til kasta lögreglu á erilsamri nótt. Innlent 5. desember 2020 07:20
Grunaðir um framleiðslu á hættulegu ofskynjunarlyfi Þrír menn sem úrskurðaðir voru í gæsluvarðhald í gær í tengslum við umfangsmikla rannsókn lögreglu á höfuðborgarsvæðinu eru grunaðir um framleiðslu á ofskynjunarlyfinu DMT. Ríkisútvarpið greinir frá þessu. Innlent 4. desember 2020 19:28
Fimm handteknir í máli sem talið er tengjast skipulagðri brotastarfsemi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur handtekið fimm vegna umfangsmiklar rannsóknar sem talin er tengjast skipulagðri brotastarfsemi. Rannsóknin snýr að framleiðslu og sölu fíkniefna og hafa þrír verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 15. desember á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Innlent 4. desember 2020 15:38
Var að störfum á eigin landi þegar hann féll í gegnum vökina Karlmaður sem lést eftir að hann féll í gegnum vök í gær var að störfum í mýrlendi á eigin landi í Flóanum austan við Selfoss, að sögn lögreglu. Ekki er ljóst hversu djúpt maðurinn sökk eða hver dánarorsök hans var. Innlent 4. desember 2020 12:32
Studdust við staðsetningarforrit og leituðu án leyfis í herbergi hælisleitenda Tekist verður á um það í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur hversu háa fjárhæð tveir hælisleitendur fá í skaðabætur frá ríkinu vegna fjölmennrar leitar lögreglu að síma sem grunur var um að stolið hefði verið af barni í Reykjanesbæ. Innlent 4. desember 2020 09:01
Þakplötur fuku af húsi í Mosfellsbæ Lögreglu á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um að þakplötur væru að fjúka af húsi í Mosfellsbæ í hvassviðrinu skömmu eftir klukkan 18 í gærkvöldi. Innlent 4. desember 2020 07:28
Lést af slysförum í Árnessýslu Maður sem féll ofan í vök í Árnessýslu á sjöunda tímanum var úrskurðaður látinn á Heilbrigðisstofnun Suðurlands í kvöld. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu á Suðurlandi. Innlent 3. desember 2020 22:14
Fór niður um vök í grennd við Selfoss Lögregla og björgunarsveitir á Suðurlandi voru kallaðar út á sjöunda tímanum í kvöld vegna slyss sem varð fyrir utan Selfoss. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu féll manneskja niður um vök. Innlent 3. desember 2020 18:51
Ólafur Helgi í leyfi frá störfum sínum í ráðuneytinu Ólafur Helgi Kjartansson, fyrrverandi lögreglustjóri á Suðurnesjum, er kominn í leyfi frá störfum sínum í dómsmálaráðuneytinu. Ólafur Helgi hefur stöðu sakbornings í rannsókn héraðssasksóknara að meintu broti á þagnarskyldu hjá lögreglunni á Suðurnesjum. Innlent 3. desember 2020 16:19
Ákærður fyrir að stefna lífi starfsmanna í hættu með húsnæði Eigandi starfsmannaleigunnar 2findjob ehf. hefur verið ákærður fyrir hættubrot og brot gegn lögum um brunavarnir með því að hafa látið starfsmenn leigunnar búa í iðnaðarhúsnæði í Reykjavík án tilskilinna leyfa og fullnægjandi brunavarna. Hann er sakaður um að hafa stofnað lífi og heilsu starfsmannanna í háska í ábataskyni. Innlent 3. desember 2020 10:54
Bíll ölvaðs manns rann á lögreglubíl Bíll ölvaðs manns rann á lögreglubíl í vesturbæ Reykjavíkur eftir að ökumaðurinn hafði sleppt því að ganga tryggilega frá bílnum þegar hann hafði verið stöðvaður af lögreglu og stigið út úr bílnum. Innlent 3. desember 2020 07:14
Ekkert spurst til Arnars síðan í september Lögreglan á Austurlandi lýsir eftir Arnari Sveinssyni, 32 ára karlmanni, en ekkert hefur spurst til hans síðan í september síðastliðnum. Innlent 2. desember 2020 14:57
Anna Aurora bakvörður ætlar í mál við íslenska ríkið og fleiri Anna Aurora Waage Óskarsdóttir ætlar að stefna íslenska ríkinu vegna handtöku hennar á Vestfjörðum í apríl þar sem hún var grunuð um að villa á sér heimildir sem bakvörður á Hjúkrunarheimilinu Bergi í Bolungarvík. Þá ætlar hún að stefna fjölmiðlum og einstaklingum sömuleiðis. Lögmaður hennar segir mikla vinnu framundan að hreinsa mannorð skjólstæðings síns. Innlent 2. desember 2020 14:57
Bakvörðurinn á Bergi verður ekki ákærður Kona sem var grunuð um að hafa villt á sér heimildir sem bakvörður á hjúkrunarheimilinu Bergi í Bolungarvík í fyrstu bylgju kórónuveirufaraldursins verður ekki ákærð. Þetta staðfestir Kolbrún Benediktsdóttir varahéraðssaksóknari við Vísi. Innlent 2. desember 2020 13:05
Grímulaus og til vandræða í matvöruverslun Laust eftir klukkan fimm síðdegis í gær barst lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynning um mann sem var í annarlegu ástandi, grímulaus og almennt til vandræða í matvöruverslun. Innlent 2. desember 2020 06:25
Brotaþolar geti fylgst með máli sínu í stafrænni gátt Unnið er að uppsetningu rafrænnar gáttar þar sem þolendum kynferðisbrota verður gert kleift að fylgjast með framgangi mála sinna þannig að þeir geti fylgst með því hvar mál þeirra er statt í ferlinu. Innlent 30. nóvember 2020 21:13
„Alltof mörg“ héldu gleðskapnum gangandi á hótelinu eftir lokun Allt að þrjátíu gestir voru samankomnir í einu rými á hóteli á Suðurlandi um helgina þegar lögreglu bar þar að garði við eftirlit. Hótelið hefur verið kært fyrir brot á sóttvarnalögum. Innlent 30. nóvember 2020 18:53
Fór inn í bíl og rændi ökumann Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst í gærkvöldi tilkynning um rán í Laugardalnum þar sem maður fór inn í bíl, ógnaði ökumanni og hafði á brott muni í eigu ökumannsins. Þá varð slys í Garðabæ þar sem tveir bílar skullu saman og urðu báðir óökufærir. Innlent 29. nóvember 2020 07:22
Hræktu á lögreglumenn og höfðu uppi grófar hótanir Þrír ungir menn voru handteknir í Kópavogi í nótt fyrir ólæti. Mennirnir létu mjög ófriðlega eftir að lögregla stöðvaði för ökumanns í bænum sem var grunaður um akstur undir áfengis eða fíkniefna að því er segir í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 28. nóvember 2020 13:56
Nauðgaði tvisvar sömu nótt en á skilorði vegna dráttar á máli Landsréttur hefur staðfest 18 mánaða fangelsisdóm Héraðsdóms Reykjaness yfir manni sem gerðist sekur um að nauðga fyrrverandi unnustu sinni í tvígang. Landsréttur mildar hins vegar refsingu að því leyti að dómurinn skuli skilorðsbundinn til tveggja ára vegna verulegs dráttar á meðferð málsins. Innlent 28. nóvember 2020 13:37
Mikið um ölvun og hávaðakvartanir Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir að töluverður erill hafi verið hjá lögregluþjónum í nótt. Mikið hafi verið um ölvunartengd mál og hávaðakvartanir. Innlent 28. nóvember 2020 13:21
Ekki talið að andlát ungbarns hafi borið að með saknæmum hætti Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu vill koma því á framfæri að andlát ungbarns í haust, sem hefur verið til umfjöllunar í fjölmiðlum í vikunni, bar ekki að með saknæmum hætti. Innlent 27. nóvember 2020 13:42
Flúði undan árásarmanni inn í blokk í Hafnarfirði Upp úr klukkan hálftvö í nótt barst lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynningu um óeðlilega hegðun í fjölbýlishúsi í Vallarhverfinu í Hafnarfirði. Innlent 27. nóvember 2020 06:39
Ævar Annel gaf sig fram Ævar Annel Valgarðsson, tvítugur Reykvíkingur sem lögregla hefur leitað síðan á föstudaginn, er kominn í leitirnar. Innlent 26. nóvember 2020 14:26
Neitaði að virða reglur í sóttkví og var handtekinn Nokkur erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og í nótt ef marka má dagbók hennar. Innlent 26. nóvember 2020 07:48
Móðir Ævars Annels biðlar til fólks að segja frá Leit lögreglu að Ævari Annel Valgarðssyni, tvítugum Reykvíkingi, hefur engan árangur borið. Hans hefur verið leitað síðan á föstudaginn þegar lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti eftir honum. Innlent 25. nóvember 2020 12:31
Handtekinn fyrir að slá leigubílstjóra Ölvaður maður var handtekinn af lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt eftir að hafa slegið leigubílstjóra. Innlent 24. nóvember 2020 06:27