Líbanon verið hluti af samkomulaginu og Trump þurfi að velja Forseti íranska þingsins segir búið að rjúfa þrjú ákvæði í tíu punkta tillögu Írans sem kvað á um tveggja vikna vopnahlé í átökum við Bandaríkin og Ísrael. Utanríkisráðherra Írans segir Bandaríkin þurfa að velja milli vopnahlés eða áframhaldandi stríðs. Erlent 8.4.2026 20:08
Hormússund sagt lokað á ný Stjórnvöld í Íran hafa lokað Hormússundi á ný vegna árása Ísraels á Líbanon, að sögn ríkismiðils í Íran. Bandaríkin og Íran sögðust í gær hafa komist að samkomulagi um tveggja vikna vopnahlé með því skilyrði að opnað yrði fyrir skipaumferð um sundið. Erlent 8.4.2026 17:13
Réðust fyrirvaralaust á miðborg Beirút Tugir eru sagðir fallnir og hundruð særð eftir að Ísraelsher gerði fyrirvaralausar loftárásir á miðborg Beirút í Líbanon í dag. Ísraelar segja að vopnahlé sem þeir gerðu við Írani í gær nái ekki til árása þeirra á Hezbollah-samtökin í Líbanon. Erlent 8.4.2026 13:57
Senda tvö þúsund landgönguliða til Mið-Austurlanda Bandaríkin senda nú um 2.500 bandaríska landgönguliða til Mið-Austurlanda. Enn halda árásir Bandaríkjamanna og Ísraelsmanna á Íran áfram og Íranir hafa ekki látið af árásum sínum á olíuflutningaskip í Persaflóa. Erlent 13. mars 2026 20:39
Ekkert lát á árásum Ísraela og hvatt til rýmingar á stóru svæði Ísraelsher hefur haldið árásum sínum á suðurhluta Líbanon áfram og hefur nú beint þeim tilmælum til íbúa á stóru svæði sem nær til nokkurra borga og fjölda þorpa að flýja heimili sín og halda norður. Erlent 13. mars 2026 06:49
Skæðadrífa frá Íran og Ísraelar héldu árásum á Líbanon áfram Ísraelsher segir að Íranir hafi snemma í morgun sent skæðadrífu flugskeyta á skotmörk víðsvegar um Ísrael en enn hafa engar fregnir borist af tjóni vegna þeirra. Erlent 5. mars 2026 06:49
Írönum og Bandaríkjamönnum ber ekki saman um stöðuna á Hormuz-sundi Hernaðaryfirvöldum í Íran annars vegar og Bandaríkjunum hins vegar ber ekki saman um stöðuna á Hormuz-sundi. Íranir sögðust í gær hafa fulla stjórn á skipaumferð um sundið og að allir sem fær þar um ættu á hættu að verða fyrir árásum eldflauga eða dróna. Erlent 4. mars 2026 06:40
Vaktin: Átökin breiðast enn út Átökin í Mið-Austurlöndum halda áfram að breiða úr sér. Bandaríkjamenn og Ísraelar varpa enn sprengjum á skotmörk í Íran og Íranir halda áfram að svara fyrir sig með dróna- og eldflaugaárásum á nágrannaríki sín. Hezbollah lýsti í gær yfir stríði við Ísrael og gerðu Ísraelar nýja innrás í Líbanon í morgun. Erlent 3. mars 2026 09:35
Ísrael gerir árásir á Tehran og Beirút og Íranir svara fyrir sig Stríð Bandaríkjanna og Ísrael gegn Íran hefur nú breiðst út um öll Mið-Austurlönd, með gagnárásum Írana á herstöðvar og sendiráð Bandaríkjanna og skotmörk í Ísrael. Erlent 3. mars 2026 06:31
Hundruð þúsunda farþega strandaglópar vegna stríðs í Íran Hundruðum flugferða hefur verið aflýst í Miðausturlöndum og hundruð þúsunda farþega eru strandaglópar og helstu flugstöðvar í Mið-Austurlöndum eru lokaðar vegna stríðs Bandaríkjanna og Ísraels gegn Íran. Íslendingar eru víða í vandræðum í Asíu og Miðausturlöndum vegna lokana. Erlent 2. mars 2026 07:51
Íranir svara fyrir sig og Ísraelar ráðast gegn Hezbollah í Líbanon Háværar sprengingar heyrðust í Jerúsalem, Dúbaí, Doha og Manama í morgun, er Íranir héldu áfram að gera árásir á skotmörk til að hefna fyrir hernaðaraðgerðir Bandaríkjanna og Ísrael. Erlent 2. mars 2026 06:27
Felldu háttsettan Hezbollah-liða í sprengjuárás á Beirút Fimm létust í loftárás Ísraels á líbönsku höfuðborgina Beirút í dag, þar á meðal starfsmannastjóri hernaðarvægs Hezbollah. Tveimur dögum áður hafði forseti Líbanon lýst því yfir að hann væri tilbúinn í samningsviðræður við Ísraelsmenn. Nú íhuga Hezbollah-liðar að svara árásinni. Erlent 23. nóvember 2025 23:35
Sjö rétta líbönsk veisla sem þú mátt alls ekki missa af! Veitingastaðurinn Sumac blæs til líbanskrar veislu föstudaginn og laugardaginn 26.-27. september en þá mæta tveir gestakokkar í hús, þær Joyce og Gab sem báðar eru frá Líbanon. Lífið samstarf 22. september 2025 09:02
Vilja afvopna einangraða og veikburða Hezbollah-liða Háttsettur íranskur embættismaður fundaði á miðvikudag með ráðamönnum í Líbanon vegna áætlana um að afvopna Hezbollah-samtökin, sem hafa notið stuðnings frá klerkastjórninni í Íran frá því þau voru stofnuð á níunda áratug síðustu aldar. Erlent 14. ágúst 2025 07:02
Abrahamska dulspekitrúin sem heyr tilvistarstríð Síðasta sunnudag brutust út blóðug átök í borginni Sweida í suðurhluta Sýrlands á milli vopnaðra hópa Drúsa og Bedúína. Nýviðtekin ríkisstjórn Sýrlands, undir forystu Ahmads al-Sharaa, sendi herlið í borgina undir því yfirskini að stilla til friðar en við það stigmögnuðust átökin. Erlent 23. júlí 2025 13:58
Aðdragandinn: Hótanir og árásir á hótanir og árásir ofan Átökin í Mið-Austurlöndum stigmögnuðust gríðarlega í gærkvöldi þegar Bandaríkjaher hóf loftárásir á Íran. Níu dagar eru síðan Ísraelar hófu að skjóta á Íran en átökin eiga sér lengri aðdraganda. Erlent 22. júní 2025 14:45
Trump segir fólki að yfirgefa Tehran hið snarasta Íranar halda áfram að skjóta eldflaugum á Ísrael, eftir að Ísraelar hafa gert umfangsmiklar loftárásir í Íran. Eldflaugunum virðist þó fara sífellt fækkandi og Ísraelar segjast hafa tryggt sér yfirráð í háloftunum yfir Íran. Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, lýsti því yfir í kvöld að allir íbúar Tehran, höfuðborgar Íran, ættu að flýja en Bandaríkin hafa verið að flytja umtalsverðan herafla til Mið-Austurlanda. Erlent 16. júní 2025 22:57
Fyrsta árás Ísraelshers í Líbanon eftir vopnahlé Lofther Ísraelsher gerði fyrstu loftárásina í Beirút, höfuðborg Líbanon, síðan vopnahlé var samþykkt milli Ísrales og Hezbollah samtakanna undir lok síðasta árs. Erlent 28. mars 2025 14:31
Engin greinarmunur gerður á Líbanon og Hezbollah ef friðurinn heldur ekki Varnarmálaráðherra Ísrael segir að ef til þess kemur að vopnahléið við Hezbollah í Líbanon haldi ekki, muni stjórnvöld ekki gera greinarmun á Hezbollah annars vegar og Líbanon hins vegar. Erlent 3. desember 2024 12:53
Vopnahléið heldur en íbúar Gasa telja sig svikna Vopnahlé sem tók gildi milli Ísraela og Hezbollah í nótt hefur haldið að mestu í dag, þó það þyki brothætt og að Ísraelar hafi varpað sprengjum á tvö þorp í suðurhluta Líbanon. Fólk sem þurft hefur að flýja heimili sín streymir til suðurs þó herir bæði Ísrael og Líbanon hafi varað fólk við því. Erlent 27. nóvember 2024 14:47
Vopnahlé tók gildi í nótt og fólk farið að snúa aftur heim Vopnahlé á milli Ísraela og Hezbollah samtakanna í Líbanon tók gildi klukkan fjögur í nótt. Erlent 27. nóvember 2024 06:45
Vopnahlé milli Ísraels og Líbanon í höfn Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísraels mun leggja fram tillögu um vopnahlé milli Ísraels og Líbanon fyrir ríkisstjórn sína til samþykktar. Þetta tilkynnti ráðherrann í kvöld en ítrekaði að vopnahlé í Líbanon hafi engin áhrif á stríðið á Gasa. Erlent 26. nóvember 2024 20:10
Sprengdu tuttugu hús á tveimur mínútum Ísraelski herinn tilkynnti í dag umfangsmiklar loftárásir í Beirút, höfuðborg Líbanon. Þær voru tilkynntar skömmu áður en Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísrael, mun funda með ráðherrum sínum um mögulegt vopnahlé milli Ísraela og Hezbollah-samtakanna. Erlent 26. nóvember 2024 14:12
Ísrael og Hezbollah sögð við það að gera vopnahlé Ísraelsríki og Hezbollah-samtökin eru sögð nálgast samkomulag um vopnahlé. Axos-fréttastofan hefur eftir bandarískum embættismanni að skilmálar vopnahlésins liggi fyrir þó enn eigi eftir að staðfesta þá. Erlent 25. nóvember 2024 15:02