Áhorfandi handtekinn fyrir að kasta pylsu að Tiger Woods Tiger Woods virðist hafa náð sér þokklega á strik síðustu dagana en hann spilaði í dag á 68 höggum á Frys.com-mótinu á PGA-mótaröðinni, þriðja daginn í röð. Meiri athygli vakti þó að áhorfandi á mótinu var handtekinn fyrir að kasta pylsu í átt að kylfingnum. Golf 9. október 2011 22:33
Tiger spilaði vel annan daginn í röð Tiger Woods lék þriðja hringinn á Frys.com-mótinu á PGA-mótaröðinni á 68 höggum í gær, rétt eins og hann gerði á öðrum keppnisdegi. Er það í fyrsta sinn síðan í upphafi ársins sem hann spilar undir 70 höggum tvo daga í röð. Golf 9. október 2011 12:15
Tiger ánægður með að komast áfram Tiger Woods komst í gær í gegnum niðurskurðinn á móti í PGA-mótaröðinni í Bandaríkjunum í gær og var ánægður með þá niðurstöðu. Golf 8. október 2011 15:30
Tiger langt frá sínu besta og tapaði fyrir áhugamanni Tiger Woods sýndi enga snilldartakta þegar hann mætti til leiks á ný á PGA mótaröðina í golfi eftir sjö vikna fjarveru vegna meiðsla. Hann lék fyrsta hringinn á Frys.com meistaramótinu á 2 höggum yfir pari eða 73 höggum. Hann er í stórhættu að komast ekki í gegnum niðurskurðin og ef það gerist verður það í fyrsta sinn sem Woods lýkur keppni á eftir tvo hringi á tveimur atvinnumótum í röð. Golf 7. október 2011 11:30
Tiger gerir sinn fyrsta auglýsingasamning í tvö ár Stórfyrirtækin hafa ekki beint beðið í röð fyrir utan heimili Tiger Woods síðustu tvö ár til þess að gera við hann auglýsingasamninga. Þvert á móti hefur Tiger misst marga slíka. Golf 5. október 2011 23:45
Golfkennslumyndbönd á sjónvarpshlutanum á Vísir Golftímabilinu fer brátt að ljúka hér á Íslandi og styttist í að flestir golfvellir landsins loki. Íslenskir kylfingar eru samt sem áður slá golfbolta í vetur hér á landi og erlendis. Golfkennslumyndbönd eru nú aðgengileg á sjónvarpshlutanum á Vísir og ættu þau að nýtast þeim sem vilja bæta leik sinn. Þar er að finna brot úr Golfskóla Birgis Leifs Hafþórssonar og kennslumyndbönd frá Michael Breed. Golf 5. október 2011 15:00
Tiger Woods í sögulægri lægð á heimslistanum Tiger Woods heldur áfram að hrapa niður heimslistann í golfi en bandaríski kylfingurinn er nú í 51. sæti. Woods, sem er 35 ára gamall, hefur sigrað á 14 risamótum á ferlinum en hann hefur ekki keppt frá því í ágúst á PGA mótaröðinni. Woods hafði náð þeim ótrúlega árangri að vera í hópi 50 efstu á heimslistanum í 778 vikur samfellt eða frá 13. okt. árið 1996 þegar hann var í 61. sæti listans. Golf 4. október 2011 11:30
Dustin Johnson ekki fúll út í Tiger Dustin Johnson segist alls ekkert vera fúll út í Tiger Woods þó svo Tiger hafi stolið af honum kylfusveininum, Joe LaCava. Golf 30. september 2011 17:30
Tiger loksins búinn að finna kylfusvein Tiger Woods er búinn að finna sér nýjan kylfusvein. Sá heitir Joe LaCava og var lengi vel kylfusveinn hjá Fred Couples. Upp á síðkastið hefur LaCava síðan unnið með Dustin Johnson. Golf 26. september 2011 10:39
Ótrúlegt vatnshögg hjá Haas - vann rúmlega 1,3 milljarða kr. Kylfingurinn Bill Haas fékk heilar 11,5 milljónir bandaríkjadali í verðlaunafé gær þegar hann vann Tour Championship og um leið FedEx-bikarinn. Verðlaunaféð er það hæsta sem keppt er um í golfíþróttinni á ári hverju og vann Haas sér inn um 1,3 milljarða kr. Golf 26. september 2011 09:45
Evrópuúrvalið vann Solheim-bikarinn Evrópuúrvalið í golfi sigraði lið Bandaríkjanna í Solheim-bikarnum um helgina, en keppnin er haldin annað hvert ár og svipar til Ryder-bikarsins í karlaflokki. Golf 25. september 2011 20:30
Birgir Leifur lék síðasta hringinn á fjórum yfir pari Birgir Leifur Hafþórsson lék fjórða hring opna austurríka mótsins í golfi á fjórum höggum yfir pari. Hann lauk leik á tveimur höggum yfir pari samanlagt. Golf 25. september 2011 13:36
Birgir Leifur á einu yfir pari eftir tíu holur Birgir Leifur Hafþórsson hefur lokið tíu holum á lokahringnum á opna austurríska mótinu í golfi. Hann er á einu höggi yfir pari og á einu höggi undir pari samanlagt. Golf 25. september 2011 11:17
Birgir Leifur í 23. sæti eftir þriðja hring Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG er í 23. sæti á opna austurríska mótinu í golfi að loknum þriðja hring. Mótið er hluti af Evrópumótaröðinni í golfi. Golf 24. september 2011 19:45
Birgir Leifur í banastuði í Austurríki Birgir Leifur Hafþórsson fór á kostum á þriðja hring opna austurríska golfmótsins í morgun. Birgir Leifur lék hringinn á 68 höggum eða fjórum undir pari vallarins. Hann er því á tveimur höggum undir pari samanlagt eftir þrjá hringi. Golf 24. september 2011 11:30
Ólafur Már komst ekki áfram á annað stig úrtökumótanna Ólafur Már Sigurðsson, kylfingur úr GR, er úr leik á úrtökumótum Evrópumótaraðarinnar í golfi. Ólafur lauk leik í Þýskalandi í dag á 74 höggum eða tveimur höggum yfir pari. Hann var þremur höggum frá því að komast áfram. Golf 23. september 2011 20:06
Birgir Leifur líklega í gegnum niðurskurðinn Birgir Leifur Hafþórsson kemst líklega í gegnum niðurskurðinn á opna austurríska mótinu. Birgir Leifur lék annan hring mótsins á 77 höggum eða fimm höggum yfir pari og er á tveimur höggum yfir pari samtals. Eins og staðan er núna dugar það Birgi Leifi í gegnum niðurskurðinn. Golf 23. september 2011 15:08
Brjálaður kylfingur fékk tveggja ára dóm Ástralinn Daniel Patrick Betts var dæmdur í tveggja ára skilorðsbundið fangelsi fyrir grófa líkamsárás. Betts missti stjórn á skapi sínu við það að leika golf með félögum sínum árið 2009. Golf 23. september 2011 14:30
Ólafur Már í góðri stöðu á lokahringnum Ólafur Már Sigurðsson, kylfingur úr Golfklúbbi Reykjavíkur, er í góðri stöðu á fjórða hring úrtökumóts Evrópumótaraðarinnar í Fleesensee í Þýskalandi. Ólafur hefur leikið fyrstu tíu holurnar í dag á tveimur höggum undir pari og er á fjórum höggum undir samanlagt. Golf 23. september 2011 11:02
Birgir Leifur: Þetta var frábært fyrir sjálfstraustið Birgir Leifur Hafþórsson atvinnukylfingur úr GKG byrjaði mjög vel á Opna austurríska mótinu í golfi, sem tilheyrir Evrópumótaröðinni og hófst í Atzenbrugg í gær. Birgir lék fyrsta hringinn á 69 höggum, þremur höggum undir pari, sem skilar honum upp í 6. sætið. Golf 23. september 2011 08:00
Greg Norman: Tiger mun ekki vinna fleiri risamót Ástralinn Greg Norman hefur enga trú á því að Tiger Woods muni vinna annað risamót á ferlinum. Norman segir að það sé einfaldlega of margt að trufla Tiger. Golf 22. september 2011 13:30
Fín byrjun hjá Birgi í Austurríki á fyrsta keppnisdegi Birgir Leifur Hafþórsson hefur lokið leik á fyrsta keppnisdegi á opna austurríska meistaramótinu í golfi sem er hluti af Evrópumótaröðinni. Birgir lék á 69 höggum eða 3 höggum undir pari og er hann á meðal efstu manna þessa stundina en fjölmargir kylfingar eiga eftir að ljúka leik í dag. Golf 22. september 2011 11:03
Ólafur Már í 30. sæti eftir fyrsta hringinn í Þýskalandi Ólafur Már Sigurðsson og Þórður Rafn Gissurarson úr GR eru báðir að keppa á úrtökumóti á fyrsta stigi fyrir Evrópumótaröðina sem fram fer í Fleesensee í Þýskalandi. 30 efstu kylfingarnir í mótinu komast áfram á annað stig úrtökumótsins á Spáni þar sem Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG verður meðal keppenda. Golf 20. september 2011 19:08
Rose bætti stöðu sína fyrir lokamótið í úrslitakeppninni Enski kylfingurinn Justin Rose sigraði á BMW meistaramótinu í golf í gær í úrslitakeppni PGA mótaraðarinnar. Þetta var þriðji sigur Rose á bandarísku mótaröðinni og er hann í ágætri stöðu fyrir lokamótið í Fed-Ex úrslitakeppninni sem fram fer í þessari viku í Atlanta. Þar er keppt um 10 milljóna dala verðlaunafé eða sem nemur um 1,2 milljörðum kr. Golf 19. september 2011 13:00
16 ára kylfingur vann mót á LPGA-mótaröðinni Kylfingurinn, Lexi Thompson, varð um helgina yngsti keppandinn til að sigra á móti í LPGA mótaröðinni í Bandaríkjunum, en hún er 16 ára. Golf 18. september 2011 22:15
Tinna gerist atvinnumaður - reynir við úrtökumótið í janúar Tinna Jóhannsdóttir, Íslandsmeistari í golfi 2010, hefur ákveðið að gerast atvinnukylfingur og stefnir að því að verða fyrsta íslenska golfkonan sem vinnur sér varanlegan sess á Evrópumótaröð kvenna. Laugardaginn 24. september mun Golfklúbburinn Keilir halda sérstakt styrktarmót fyrir Tinnu til að undirbúa þátttöku hennar í úrtökumóti fyrir mótaröðina, sem fram fer á La Manga á Spáni í janúar. Golf 16. september 2011 14:45
Reykjavíkurúrvalið vann KPMG-bikarinn og setti met Reykjavíkurúrvalið vann öruggan sigur á Landsbyggðinni í KPMG bikarnum í golfi sem lauk í gær á Hvaleyrarvelli í Hafnarfirði. Lokatölur urðu 18 vinningar gegn 6 sem er stærsti sigurinn í keppninni til þessa en þetta er í fyrsta sinn sem Reykjavíkurúrvalið vinnur í þessari árlegu keppni. Golf 11. september 2011 07:00
Höfuðborginni dugar þrjú stig til viðbótar Fyrri keppnisdegi á KPMG-mótinu er nú lokið og óhætt að segja að keppnislið höfuðborgarinnar standi vel að vígi fyrir keppni í tvímenningi á morgun. Golf 9. september 2011 20:00
Birgir missir af mótinu í Kasakstan - vegabréfsáritunin í ólagi Ekkert verður af því að Birgir Leifur Hafþórsson leiki á áskorendamótaröðinni í þessari viku eins og til stóð. Birgir var kominn til Frankfurt í Þýskalandi þegar í ljós kom að vegabréfsáritun hans til Kasakstan þar sem mótið fer fram var ekki í lagi. Golf 7. september 2011 15:53
Tiger Woods fellur áfram eins og steinn niður heimslistann Bandaríski kylfingurinn Tiger Woods heldur áfram að hrapa niður heimslistann og fellur hann niður um sex sæti frá því í síðustu viku. Woods er þessa stundina í 44. sæti. Bandaríkjamaðurinn Webb Simpson er nú í 14. sæti eftir sigurinn á Deutsche Bank meistaramótinu í gær en hann var áður í 27. sæti. Golf 6. september 2011 11:30