Hondius kominn í sótthreinsun
Farþegaskipið Hondius er komið til Rotterdam í Hollandi þar sem það verður sótthreinsað í hólf og gólf á næstu dögum. Skipið sigldi þangað frá Kanaríeyjum þar sem farþegum var hleypt frá borði og var því einungis áhöfnin um borð. Hundrað og fimmtíu voru í skipinu þegar fólk fór að greinast með hantaveiru. Alls hafa ellefu greinst með veiruna og eru þrír látnir.