DJ Katla plötusnúður mánaðarins - Party Zone
Í Party Zone þætti vikunnar er kynntur til leiks plötusnúður desember mánaðar sem er engin önnur en DJ Katla. Hún tekur hlustendur í tæplega 80 mínútna ferðalag um heim danstónlistarinnar með blöndu af nýrri tónlist og eldri perlum eins og henni einni er lagið. Lagalista mixins má sjá á Facebook síðu þáttarins. Ekki missa af hreint út sagt frábæru mixi frá DJ Kötlu!