TM mótið í Vestmannaeyjum
Veðrið lék við gesti TM mótsins í Vestmannaeyjum um síðustu helgi. Mótið í ár var með þeim stærri sem haldið hefur verið en alls tóku 112 lið þátt frá 32 félögum víðs vegar af landinu eða tæplega 1150 keppendur, þjálfarar og fararstjórar. Þáttur um mótið verður sýndur á Sýn Sport Ísland í kvöld klukkan sjö.