Óvissustig í gildi vegna óveðurs
Óvissustigi Almannavarna hefur verið lýst yfir vegna norðanáhlaups sem spáð er næsta sólarhringinn. Búist er við samgöngutruflunum og fólk er hvatt til að fylgjast vel með veðurspám. Lillý Valgerður er í stjórnstöð Vegagerðarinnar þar sem menn eru við öllu búnir.