Múmínævintýri í Kjarnaskógi
Norðlenskir krakkar sem elska ævintýri Tove Jansson mega heldur betur hlakka til því í Kjarnaskógi er verið að reisa Múmínskóg með öllu tilheyrandi. Framkvæmdastjóri skógræktarfélags Eyfirðinga segir hugmyndina hafa sprottið út frá síberíulerkinu - því trén eru heilt ævintýri í sjálfu sér.