Vonaði að málinu væri að ljúka

Hæstiréttur ómerkti í dag sýknudóm þeirra Sindra Snæs Birgissonar og Ísidórs Nathanssonar í hryðjuverkamálinu svokallaða og vísaði því aftur til Landsréttar. Í málinu er Sindri Snær ákærður fyrir tilraun til hryðjuverka og Ísidór hlutdeild í tilraun hans. Lögregla greindi fyrst frá málinu á blaðamannafundi árið 2022 þar sem fram kom að tvímenningarnir hefðu verið handteknir vegna gruns um að þeir hefðu í hyggju að fremja hryðjuverk hér á landi.

4
01:32

Vinsælt í flokknum Fréttir