Kveiktu í stjórnarráðsbyggingum og banka í Tirana
Tugþúsundir námsmanna flykktust út á götur Tírana, höfuðborgar Albaníu, í gær og kveiktu í stjórnarráðsbyggingu og tveimur bönkum. Samkvæmt frétt Guardian eru 23 lögreglumenn slasaðir og sex mótmælendur. Þá kemur fram að 35 hafi verið handteknir.