Fimm háskólagráður og kann sjö tungumál
Í þættinum setjumst við á skólabekk hjá Artem Ingmar sem er doktor í kennslufræði. Hann hefur gert að hlutverki sínu að rannsaka innflytjendur og menntakerfið. En ekki nóg með það því hann er með fimm háskólagráður og kann sjö tungumál. Hann kemur frá Rússlandi en starfar sem dönskukennari í Garðaskóla og segir það einkar skemmtilegt.